fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Kristín Þóra í ólíkum hlutverkum – „Ég bara get ekki valið á milli, bæði jafn skemmtilegt“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 10. janúar 2026 10:30

Kristín Þóra í Heimaey.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún ræðir um ferilinn, ólík hlutverk, ástina, kulnun og margt fleira.

Hlustaðu á þáttinn á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Textabrot úr þættinum má lesa hér að neðan.

Sjá einnig: Kristín Þóra segir frá afgerandi augnabliki – „Þá gerðist þetta aftur. Ég vissi ekki hvar ég var og hvernig ég komst þangað“

Það var nóg að gera hjá Kristínu Þóru síðastliðið ár. Auk þess að vera með vel heppnaða og eftirsótta sýningu í Þjóðleikhúsinu, Á rauðu ljósi, þá leikur hún í tveimur nýjum þáttum. Dönsku konunni á RÚV og Heimaey í Sjónvarpi Símans.

Fyrsti þáttur af Dönsku konunni var sýndur á nýársdag á meðan Heimaey fór í loftið í lok nóvember í fyrra.

„Danska konan er í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og Trine Dyrholm leikur aðalhlutverkið. Þetta er um danska konu sem flytur í blokk vill að allir tali dönsku og tekur málið svolítið í sínar hendur. Ótrúlega frumlegt og ferskt,“ segir Kristín Þóra.

Heimaey er íslensk/portúgölsk þáttaröð um morðrannsókn í Vestmannaeyjum.

„Bæði verkefnin í eðli sínu og karakterarnir mínir eru mjög ólíkir,“ segir Kristín.

Aðspurð hvort hlutverkinu hún fíli sig betur í segr hún: „Ég bara get ekki valið á milli, bæði bara jafn skemmtilegt.“

Kristín Þóra lék einnig í Áramótaskaupinu í fyrra og var í námi í jákvæðri sálfræði. Hún segist geta farið í gegnum svona annasöm tímabil þökk sér eiginmanninum og börnunum. Hún segir líka hjálpa að vita að þetta sé bara tímabil og að rólegri stundir séu fram undan, eins og núna eftir áramót.

„Ég á náttúrulega stórkostlegan maka og ótrúlega flott og dugleg börn. Og frábært bakland, bæði foreldrar mínir og tengdaforeldrar eru ótrúleg. En ég geri eiginlega ekkert annað en að vera mamma og vinna þegar það er svona törn,“ segir hún og bætir við að forgangsröðun skipti miklu máli og að minnka kröfurnar til sín.

Hún ræðir nánar um þættina, verkefnin og leikaralífið í Fókus, sem má hlusta á í heild sinni hér. Hún opnar sig einnig um kulnun og ástina.

Kristín er enn að sýna Á rauðu ljósi í Þjóðleikhúsinu þar sem hún talar til áhorfenda á bráðfyndinn hátt, en af einlægni og hispursleysi, um stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 4 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum