

Foreldrar hennar slitu samvistum áður en Ragna fæddist og hún bjó alla tíð hjá móður sinni en var í miklum og góðum samskiptum við föður sinn.
„Pabbi var alkóhólisti og ég vissi það alla tíð, það var aldrei leyndarmál.”
Ragna var meðvituð en upplifði skömm upp að vissu marki, eins og margir þekkja.
„Auðvitað vill maður að fjölskyldan manns sé fullkomin og ég gat ekki verið hjá pabba þegar hann drakk.“
Þegar Ragna var sextán ára týndist faðir hennar og auglýst var eftir honum.
„Ég reyndi að hringja í hann en fékk ekki svar og fékk mjög vonda tilfinningu. Það var á föstudegi. Hann fannst á þriðjudegi eftir að hafa tekið sitt eigið líf í Heiðmörk.“
Ragna setti upp mikla og þunga grímu eftir að faðir hennar lést, hún var sár og reið en á sama tíma var hún alltaf hress og kát út á við. „Ég vildi ekki verða bara stelpan sem missti pabba sinn eða stelpan sem átti pabbann sem tók líf sitt svo ég ákvað að halda bara áfram.”
Hún tók reiðina út á fótboltavellinum.
Átján ára byrjaði hún að drekka og djamma sem telst ekki óeðlilegt en það var flótti í hennar tilfelli. Á einum tímapunkti fann hún sig eina heima að drekka en það var hennar botn og það vildi hún ekki og fann að hún þyrfti að vinna í sjálfri sér og sorginni.
Ragna glímir einnig við erfiðan sjúkdóm sem heitir CRPS eða Complex Regional Pain Syndrome sem blossaði upp í kjölfar meiðsla á fótboltavellinum en einnig getur það verið leið líkamans til að stoppa mann af.
„Ég ber virðingu fyrir ákvörðun pabba þó ég vildi óska að hann væri hérna. Ég er rosalega hrædd um að missa mömmu í dag og hef meira að segja brotið upp hurðina hjá henni þegar hún svaraði ekki símanum og ég var búin að gleyma að hún væri í útskrift.”
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.