fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fókus

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 9. mars 2026 16:00

Ófrýnilegt bleyjuskrímsli dýfði sér í Thames ánna. Skjáskot/zackmennell

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klæddi sig í 24 bleyjur og dýfði sér í Thames fljót til að mótmæla – Fékk lífshættulegan sjúkdóm

Breskur listamaður klæddi sig í galla sem var saumaður saman úr 24 bleyjum og synti um ánna Thames í Bretlandi til þess að mótmæla skolpmengun. Gjörningurinn endaði með því að listamaðurinn veiktist.

„Ég ætla að verða sníkjudýr,“ sagði listamaðurinn Zack Mennell, eða zack mennell eins og hann kallar sig, við dagblaðið The Guardian.

Eins og skrímsli úr Universal mynd

Hafði fólk sem átti leið fram hjá Thames ánni, sem rennur í gegnum London, séð óhugnanlega veru. Veru sem virtist vera búin til úr rusli sem svamlaði í ánni og laumaðist um við árbakkann, líkt og skrímsli úr gamalli Universal hryllingsmynd.

Veran var þó bara Mennell, sem hafði saumað saman 24 pappírsbleyjur í búning sem hann klæddi sig í. Eins og barnafólk veit þá eru bleyjurnar rakadrægar og því blés búningurinn út þegar Mennell dífði sér í fljótið. Var ásjóna hans ansi ófrýnileg.

Mennell eins og skrímsli úr gamalli bíómynd. Skjáskot/zackmennell

En í Thames fljóti er ekki aðeins vatn heldur tekur áin við skólpi frá 16 milljón manns. Hafa ber þó í huga að fjöldamargar öflugar skolphreinsistöðvar eru að störfum allan sólarhringinn.

Fékk hugmyndina á djamminu

Engu að síður er fljótið mengað og bleyjur Mennels drógu ófögnuðinn í sig. En gjörningur hans var einmitt gerður til þess að mótmæla skólpmengun.

„Þetta var svolítið skrýtið, svolítið erfitt, svolítið kjánalegt,“ sagði Mennell. En hugmyndina fékk hann þegar hann var að ganga heim af djamminu í London, með fram Thames ánni. „Þetta voru átök. En þetta var einnig gert til þess að mynda tengsl við áhorfandann. Lifandi list snýst ekki um að vera allsber bara af því að manni langar til þess.“

Verkið, sem kallast para(site) og er orðaleikur sem tengir saman orðin sníkjudýr og „veikur-staður“. Er reyndar stærra en aðeins bleyjuskrímslið. Í því leikur Mennell sér með alls kyns mengaða hluti og vatn, klínir því á sig og umvefur.

Fékk lífshættulegan sjúkdóm úr rottuhlandi

Verkið tók hins vegar toll af heilsu Mennel. En eftir að hafa svamlað um Thames ánna fékk hann sjúkdóm sem kenndur er við Weil, bakteríusjúkdóm sem fólk fær þegar það kemst í kynni við þvag úr rottum.

Sjúkdómurinn hefur áhrif á ýmis líffæri líkamans, fólk verður gult á húðinni og augum, fær útbrot, hósta magaverk og bólgna ökkla og úlnliði. Alvarlegri einkenni eru nýrnabilun og blæðingar í lungum og um 5 til 10 prósent lifa sjúkdóminn ekki af.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 4 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum