fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fókus

Mörgæsin viðurkennir að hafa girnst kattarkonuna á tökustað

Fókus
Þriðjudaginn 3. júní 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Danny DeVito viðurkennir að hann hafi girnst meðleikkonu sína Michelle Pfeiffer við tökur á kvikmyndinni Batman Returns árið 1992.

DeVito lék illmennið Mörgæsina og Pfeiffer kattarkonuna og segir DeVito í samtali við Colin Farrell fyrir þáttaröðina Actors on Actors á Variety:  „Hún var gyðja. Ef ég vissi að hún yrði í senu þann dag …“ þagnaði DeVito og lét hugann reika.

Farrell skýtur inn í í gríni: „Burstaðirðu tennurnar þann morguninn?“

„Ég roðnaði alveg . Settu auka farða á mig, settu enn meira farða á mig. Þetta var mjög erfitt. Pfeiffer svo frábær. Og ég girntist hana,“ bætti DeVito við. Hann samsinnir síðan Farrell með að það væri persóna hans, Oswald Cobblepot, einnig þekktur sem Mörgæsin, sem væri að girnast hana.

„Mér finnst eins og henni hafi líkað þetta. Henni líkaði Oswald,“ sagði DeVito.

DeVito og Pfeiffer við heimsfrumsýningu myndarinnar árið 1992.

Í Batman Returns hafnar Selina Kyle, einnig þekkt sem Catwoman, tilraunum Oswalds. Árið 2021 skrifaði DeVito hins vegar smásögu þar sem persónurnar tvær voru í ástarsambandi. Hún birtist í Gotham City Villains frá DC Comics, safni teiknimyndasögu sem fagnaði illmennum Batman heimsins.

„Ég áttaði mig á því að ég hef alltaf verið mikill aðdáandi Michelle Pfeiffer og mörgæsin þráir greinilega Catwoman,“ sagði DeVito við Entertainment Weekly á þeim tíma. „Svo ég ákvað að blanda þessu tvennu saman.“

Farrell, sem lék sama hlutverk í HBO-þáttunum The Penguin, sem voru sýndir síðasta haust, spurði DeVito hvort hann vildi leika illmennið úr DC Comics aftur.

„Algjörlega,“ svaraði DeVito. „Óperuþátturinn í Batman Returns eftir Tim Burton var í uppáhaldi hjá mér við myndina, tónlistin, leikmyndin og allt saman. Shakespeare-áhrifin við þetta, Allur heimurinn er svið Ríki Oswalds og mörgæsirnar hans og fylgismenn hans og ástríða hans. Mér fannst það frábært.“

DeVito bætti síðar við að persóna hans „væri mjög ánægð“ í fráveituríki sínu í Batman Returns — „svo lengi sem ég gæti fengið Catwoman til að heimsækja mig öðru hvoru: Vertu kyrr, mörgæsahjarta mitt.“

DeVito og Farrell.

DeVito er orðinn áttræður en slær ekki slöku við, þann 9. júlí hefjast tökur á 17. þáttaröð It’s Always Sunny in Philadelphia, sem hann leikur eitt aðalhlutverkanna í.

Farrell mun endurtaka hlutverk sitt sem mörgæsin í fyrirhugaðri framhaldsmynd Matt Reeves frá 2022, The Batman, með Robert Pattinson í aðalhlutverki.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Karlar sem taka virkan þátt í umönnun barna eru heilbrigðari, lifa lengur og eru andlega stabílli“

„Karlar sem taka virkan þátt í umönnun barna eru heilbrigðari, lifa lengur og eru andlega stabílli“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikari skotinn til bana af nágranna sínum eftir átakanlega helgi

Leikari skotinn til bana af nágranna sínum eftir átakanlega helgi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Grindvíkingar syngja um þrána eftir heimahögunum – Myndband

Grindvíkingar syngja um þrána eftir heimahögunum – Myndband
Fókus
Fyrir 5 dögum

Borgarfulltrúi lýsir æsilegum eltingaleik – „Ferðast á hraða ljóssins“

Borgarfulltrúi lýsir æsilegum eltingaleik – „Ferðast á hraða ljóssins“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir að það sem Victoria Beckham gerði í brúðkaupinu hafi byrjað öll leiðindin – „Gestirnir voru agndofa“

Segir að það sem Victoria Beckham gerði í brúðkaupinu hafi byrjað öll leiðindin – „Gestirnir voru agndofa“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þórdís Björk einlæg um móðurhlutverkið: „Það ætlar enginn að eiga fyrsta barnið sitt og vera einn eða upplifa sig einan“

Þórdís Björk einlæg um móðurhlutverkið: „Það ætlar enginn að eiga fyrsta barnið sitt og vera einn eða upplifa sig einan“