fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fókus

Elma lýsir daglegu lífi í Ástralíu – Þessu furðar hún sig mest á í umferðinni

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. júní 2025 15:46

Elma Hlín Valgeirsdóttir. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elma Hlín Valgeirsdóttir starfar nú sem aupair í Ástralíu í Gold Coast, borg á austur ströndinni rétt hjá Brisbane. Elma Hlín sem er 22 ára deilir lífinu þar með fylgjendum sínum á TikTok og í nýjasta myndbandinu fer hún yfir nokkur atriði sem hún segir að myndu gera Íslendinga orðlausa.

„Númer eitt. Skólagjöldin hérna. Ef þú ákveður að senda krakkann þinn í einkaskólann, sem að mjög margir ákveða að gera, kosta milljón á ári, að meðaltali. Meira þegar krakkinn þinn er orðinn tólf ára af því þá fara þau í high-school. Og það getur alveg kostað upp í 1,2 – 1,5 milljón fyrir árið. Ef þú átt þrjú börn og þú sendir þau öll í einkaskóla, þá geturðu farið að borga þrjátíu milljónir í bara grunnskólamenntun fyrir börnin þín.“

Elma heldur áfram og segir að innifalið í þessari greiðslu sé ekki heitur matur í mötuneytinu. Og leiðréttir sig svo og segir engan mat innifalinn, ekki nesti, ekki ávextir eða grænmeti,ekki morgunmatur. Foreldrar þurfi einnig að greiða fyrir skólabúninga barna sinna sem geta verið hundrað þúsund krónur á þriggja ára fresti af því börnin vaxi upp úr þeim.

„Foreldrarnir eru að borga þetta mikið en þurfa samt að pakka nesti og kaupa mat fyrir börnin sín. Og þau fá ekki einu sinni heitan mat í hádeginu af því að hvernig ætlarðu að gera það þegar þú ert með nesti? Þau fá bara samlokur.“

@elmaahlinHlutir í Ástralíu sem myndu senda Íslendinga í coma♬ original sound – Elma Hlín

Gerðist aupair og greip tækifærin

Elma segir í samtali við DV að hún hafi valið að gerast aupair vegna tækifæranna sem bjóðast.

„Ég fæ mikið frí frá vinnu sem gerir mér kleift að ferðast og kynnast Ástralíu betur. Einnig bý ég inni á fjölskyldunni sem ég vinn fyrir. Ég hef verið mjög heppin með Aupair fjölskyldu og finnst gott að hafa örrggt þak yfir höfuðið og fasta innkomu.“

Elma mun vinna fyrir fjölskylduna fram að jólum og hefur þá verið í Ástralíu í um það bil eitt og hálft ár.

Þó ég myndi gjarnan vilja vera lengur leyfa Ástralskar visa takmarkanir það því miður ekki.

Í nýjasta myndbandi sínu þar sem Elma rekur háttsemi sem Íslendingar gætu furðað sig á segir hún það einkenna Ástrala að allir heilsa hvert sem farið er.

„Ég fer í ræktina og ég er með heyrnartólin á eða í. Ég horfi ekki einu sinni á þau. Þau eru bara: Hæ. Ég er bara ha? Ég er svona Íslendingur,“ segir Elma sem segir þetta hafa verið óþægilegt fyrst en hún sé að læra. Nú gangi hún ekki inn í verslun með heyrnartól, en yfirleitt sé hún að hlusta á hlaðvarp þegar hún er í göngutúr og að versla.

„Það kemur alltaf afgreiðslukonan upp að mér og er bara í andlitinu á mér af því hún er búin að tala við mig í tíu mínútur og ég er alltaf bara Huh? Heyri ekki neitt. Í staðinn fyrir að gefast bara upp þá er hún bara Hey, er allt í góðu?“

Elma tekur næst fyrir hegðun Ástrala í umferðinni, en eitt finnst henni einkennileg hegðun.

„Þegar þú ert að keyra og bílar bíða með að koma inn á akreinina [af aðrein], hérna í Ástralíu bíða allir bílarnir með það að fara inn á hina akreinina þar til þeir eru komnir út alveg á endann á akreininni. Þú ert að búa til pláss til að hleypa þeim inn á, Þþau munu ekki færa sig inn í röðina fyrr en að þau eru búin að keyra alla akreinina og þá fara þau inn. Þetta er ógeðslega pirrandi. Ógeðslega pirrandi. Og mér finnst það svo frekt af því það er búið að búa til pláss fyrir þig hérna en þú ætlar samt að keyra lengra fyrir framan alla hina bílana.“

Snúum okkur aftur að börnunum.

Elma segir að ef krakkarnir fara að leika við aðra krakka á svokölluðu play-date sé nær alltaf farið á mjög flotta staði.

„Mér finnst allavega ekki geggjað mikið menning ef þú ert að hitta vini þína á Íslandi að þú færir alltaf bara í Skopp eða Smárabíó. Þú veist þau eru sex, sjö ára. Þannig að foreldrar hérna eru að borga ógeðslega mikið fyrir playdates. Krakkarnir eru að fara eitthvert og það er bara sendur fimm þúsund kall með og hverju barni í hvert sinn sem þeir fara að hitta vini sína.“

Segir hún foreldra í Ástralíu ekki senda börnin sín ein út að leika, foreldrarnir séu alltaf með. Hún segir Ástralíu mjög örugga og lítið sem gerist þar hvað glæpi varðar.

„Þetta er ekki eins og Ameríka. Ég myndi skilja það ef þetta væri Ameríka. En við búum í rosalega öruggu hverfi og fólk sem býr líka í vöktuðum hverfum er ekki að senda börnin sín, 9-10 ára ein eitthvað, að fara að spyrja eftir fólki. Það er alltaf einhver með nema þetta sé bara í næsta húsi.“

Langar að ferðast meira þegar aupair starfinu lýkur

Aðspurð um hvað taki við þegar aupair starfinu lýkur næstu jól segir Elma:

„Ég er ennþá óviss um það hvað kemur næst. Ég veit að mig langar að ferðast víðar en hver veit nema ég finni mér mann í Ástralíu og ég endi bara þar!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt