Klíníski sálfræðingurinn Raj Persaud horfði á nýlegt viðtal BBC við Harry Bretaprins og segist hafa miklar áhyggjur af prinsinum sem sé greinilega í krísú.
Prinsinn mætti í viðtal til ríkismiðilsins eftir að hann tapaði dómsmáli gegn breska ríkinu. Þar hafði prinsinn freistað þess að fá aftur konungleg forréttindi í formi öryggisgæslu á vegum bresku lögreglunnar, en þeim forréttindum var hann sviptur þegar hann fluttist ásamt eiginkonu sinni og börnum til Bandaríkjanna eftir að hann sagði sig frá konunglegum skyldustörfum.
Breska ríkið ákvað eftir brotthvarf prinsins að þörf fyrir öryggisgæslu yrði metin í hvert sinn sem Harry og/eða fjölskylda kæmu í heimsókn til Bretlands. Þetta fólk í sér að Harry gat ekki lengur gert ráð fyrir lögreglufylgd og gæslu í heimsóknum og þyrfti jafnvel sjálfur að verða sér úti um og skipuleggja öryggisgæslu sína. Harry krafðist þess að fá í það minnsta að leigja lögregluna í heimsóknum en breska ríkið brást illa við þeirri beiðni og benti á að lögreglan sé ekki einkarekið öryggisfyrirtæki sem sé hægt að leigja eftir þörfum.
Prinsinn taldi þetta fyrirkomulag jafngilda heimsóknarbanni. Hann treysti sér ekki til að koma með konu sína og börn til Bretlands án þess að öryggi þeirra væri tryggt. Hann tók því þar með illa þegar hann tapaði málinu og mætti raunamæddur í áðurnefnt viðtal þar sem hann enn og aftur fjallaði opinberlega um einkamálefni fjölskyldu sinnar, þar með talið um stirt samband sitt við föður sinn, Karl Bretakonung.
Sálfræðingurinn Persaud segir að viðtalið megi mögulega túlka sem eins konar taktík hjá prinsinum. Hann sé að reyna að ögra föður sínum í von um að konungurinn hafi loksins samband.
„Ég get bara vonað að Harry Bretaprins sé með góða ráðgjafa. Hann virðist eiga erfitt og ég, af virðingu, legg til að hann fái hjálp við að komast yfir þetta svo hann geti virkilega byrjað ferlið að ná sáttum við fjölskyldu sína.“
Sálfræðingurinn telur þó ólíklegt að prinsinn leiti sér hjálpar. Hann virðist vera fangi eigin sannfæringar – sannfæringar um að hann eigi skilið að fá öryggisgæsluna – alveg sama hvað aðrir segja.
Harry hefur eins verið gagnrýndur fyrir að fjalla um heilsufar föður síns í viðtalinu, en þar gaf prinsinn til kynna að Karl væri dauðvona. Sérfræðingar segja að ef Elísabet Bretadrottning væri enn á lífi þá hefði þetta viðtal gróflega misboðið henni. Margir sérfræðingar hafa hraunað yfir prinsinn fyrir ósmekklega framkomu í garð fjölskyldu sinnar, þá sérstaklega í garð föður síns sem á nú þegar um sárt að binda vegna veikinda.