Horfðu á þáttinn hér að neðan eða hlustaðu á Spotify eða öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Þórdís Björk hefur getið sér gott orð sem söng- og leikkona í gegnum árin. Margir þekkja rödd hennar úr vinsælu Disney-myndinni Frozen, en þar ljáði hún prinsessunni Önnu rödd sína. Hún hefur líka talsett fjöldann allan af teiknimyndum og þáttum. Hún talsetur einnig bækur fyrir Storytel og alls konar auglýsingar. Hún hefur einnig stigið reglulega á svið fyrir leikfélag Akureyrar, til að mynda í hlutverki Roxy í söngleiknum Chicago og Dídí mannabarns í Benedikt búálfur.
Þórdísi er margt til lista lagt en hún hefur verið hluti af rappsveitinni Reykjarvíkurdætur frá stofnun hennar árið 2013. Hún hefur tvisvar tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins, fyrst með Reykjarvíkurdætrum og svo með unnusta sínum, söngvaranum Júlí Heiðari Halldórssyni, með laginu „Eldur.“
Það fylgir tónlistarbransanum að spila á alls konar viðburðum, en Þórdís segir þau jafn misjöfn og þau eru mörg. Henni finnst þó skemmtilegast að gigga með Júlí þar sem hún er mikil félagsvera og þrífst í góðum hópi.
Þó þetta geti verið hark þá er þetta vinna sem hentar Þórdísi. Enginn dagur eins og alltaf fjör, en hún viðurkennir að þetta er ekki jafn auðvelt púsluspil eftir að hún eignaðist börn en með góðu skipulagi og sterku baklandi er þetta mögulegt.
Þórdís varð móðir í október 2017. Hún eignaðist soninn Bjart Esteban með fyrrverandi kærasta sínum, en leiðir þeirra skildu snemma á meðgöngunni.
Hvernig var fyrir þig að verða móðir?
„Það var bara mjög skrýtið. Ég og barnsfaðir minn vorum ekkert saman, bara frá því að ég varð ólétt. Þetta verður svona erfið meðganga, andlega,“ segir hún og bætir við að líkamlega hafi hún verið mjög hress og liðið vel.
„En andlega var þetta rosalega krefjandi, mikil óvissa og kvíði. Það ætlar enginn að eiga fyrsta barnið sitt og vera einn eða upplifa sig einan. Það hafði mjög mikil áhrif á mig. Mjög mótandi áhrif og breytti mér rosalega mikið.“
Þórdís segir að hún hafi lært mikið um sjálfa sig. „Sem var gott ef maður lítur á góðu punktana í þessu. Svo náttúrulega eignuðumst við heilbrigðan dreng og maður er þakklátur fyrir það, en svo fór strax að vera erfitt,“ segir hún og heldur áfram:
„Þú ert með svo rosalega lítið barn og það er ekkert hægt að fara strax í eitthvað viku og viku prógramm þó maður myndi vilja, en það er bara ekki hægt. Þau eru einhvern veginn alveg bundin við móðurina og það var líka snúið. Það var erfitt að finna einhvern takt í því.“
Þórdís vissi ekki hvert hún ætti að snúa sér. „Það eru engin gögn til um það hvernig á að gera þetta með ungabarn. Þetta er allt eitthvað fólk sem hefur verið í sambúð og svo er kannski skilnaður þegar barnið er kannski eins, tveggja, þriggja ára. Það er svo lítið hægt að máta sig við eitthvað og mér fannst það ótrúlega erfitt, því maður vildi svo mikið gera þetta rétt. Maður vissi ekkert hvað var rétt. Maður þurfti bara að fylgja sinni sannfæringu og hlusta á sitt innsæi, og það var mjög erfitt fannst mér,“ segir hún.
„Og manni fannst maður alltaf vera að ganga á sín mörk, en maður var samt að reyna að passa upp á að barnið fengi líka tíma hinum megin. Þetta var mjög erfiður tími.“
Drengurinn varð eldri og þetta byrjaði að ganga betur. „Við pabbi hans höfum alltaf lagt okkur fram að hafa samskipti góð og reyna að gera þetta eins vel og við getum,“ segir hún.
„Bæði líka að verða foreldrar í fyrsta skipti, bæði alveg jafn týnd. Sem betur fer með tímanum fór að koma betri taktur í þetta og í dag gengur ótrúlega vel. Hann er viku og viku og þekkir ekkert annað.“
Þórdís kom í nýtt hlutverk þegar hún og Júlí Heiðar byrjuðu saman. Júlí á fyrir son sem er ári yngri en Bjartur og segir Þórdís að eins og með móðurhlutverkið þá sé hún alltaf að læra eitthvað nýtt um stjúpmóðurhlutverkið. Hún segist afar heppin með mann og stjúpson og að sameining fjölskyldunnar hafi gengið vel og drengirnir miklir vinir.
Þórdís og Júlí eignuðust dóttur í fyrra, Kolfinnu Önnu Kolku. Þó Þórdís ætti fyrir son og stjúpson var þessi upplifun ólík fyrri, þar sem á þessari meðgöngu átti hún maka en hræðslan var þó enn til staðar.
„Ég man að ég var alveg stressuð að fara að eignast annað barn því mér fannst þetta svo erfitt, að gera þetta í fyrsta skipti ein… Enda eru sjö ár á milli þeirra. Ég vissi bara að ef ég yrði ólétt aftur að ég færi inn í eitthvað gamalt trauma og ég yrði bara hrædd um að þetta myndi fara illa og vera erfitt fyrir mig og triggerast, þó ég hafi verið búin að vinna frekar vel úr þessu öllu,“ segir hún einlæg.
„En svo varð ég ólétt og það bara var yndislegt. Þegar ég var nýbúin að eiga stelpuna okkar var ég bara: Jæja, annað,“ segir hún og hlær.
„Ég man að ég var að segja við vinkonur mínar: „Vá ég skil ótrúlega vel að fólk geri þetta saman. Það concept er æði.“ Það er eitt að ákveða að gera þetta ein og taka ákvörðun um að eignast barn ein, ferð í þetta vitandi það. Það er örugglega mjög dýrmætt. En þegar maður einhvern veginn ætlar ekki að gera það og ég kem úr extreme kjarna fjölskyldu, þá verður fótunum kippt undan manni og það var smá áfall.“
Þórdís ræðir þetta nánar í þættinum sem má horfa á hér að ofan. Hún ræðir einnig um ferilinn, ADHD-greininguna og ástina. Hlustaðu á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum.