Alþjóðleg dómnefnd vinsælu Eurovision-bloggsíðunnar Wiwibloggs hafði litla trú á VÆB-bræðrum þegar hún kaus uppáhalds lögin sín í mars. Þá ráðaði dómnefndin Íslandi í 27. sæti.
En nú hefur dómnefndin séð lögin flutt á stóra sviðinu og það hefur breytt atkvæðum hennar töluvert. Nú er Ísland í 9. sæti hjá dómnefndinni sem jafnframt valdi framlag Albaníu sem sigurvegara, en það er flytjandinn Shkodra Elektronike með lagið Zjerm, næst kemur Finnland og svo Austurríki. Svíþjóð, sem veðbankar spá sigri í kvöld, er aðeins í 4. sæti á listanum.
Liðsmenn bloggsins tóku út íslenska framlagið þann 25. apríl og voru viðbrögðin frekar jákvæð.
„Er RÓA íslenskur sjómannasöngur? Popplag? Rapplag? Hverjum er ekki sama. Þetta er smellur. Lagið er skemmtilegt, grípandi og með ómótstæðilegan sjarma,“ skrifaði einn liðsmaðurinn og gaf Íslandi einkunnina 8.
„Þegar það hljómar get ég ekki hætt að raula það í margar klukkustundir – og ég er sáttur við það. Þið megið kalla mig viljugt fórnarlamb tónlistarlegs óskapnaðar,“ skrifaði annar sem sagði Róa vera skemmtilega vísun í það hvernig Eurovision var um aldamótin.
Samkvæmt meðaltali vinsælustu veðbankanna er líklegast að Svíþjóð sigri í kvöld, eða 40% líkur. Næst kemur Austurríki með 20% líkur og svo Frakkland með 14%. Finnlandi er spáð 4. sæti með 6% sigurlíkur. Veðbankarnir hafa ekki eins mikla trú á Íslandi og Wiwibloggs-dómnefndin en það eru taldar minni en 1% líkur á að Væb-bræður sigri og okkur er spáð 24. sæti. En þessir sömu veðbankar spáðu því að við kæmumst ekki á úrslitakvöldið – svo hvað vita þeir?