Ozempic var þróað sem lyf í baráttu gegn sykursýki en hefur reynst byltingarkennt sem megrunarlyf. Önnur lyf eru einnig á markað með sömu virkni, eins og Mounjaro og Wegovy.
Brad Roberts, 44 ára, hefur einnig höfðað mál gegn LifeMD, sem er fjarheilbrigðisfyrirtæki sem býður upp á aðgengi að læknum í gegnum síma eða tölvu.
DailyMail greinir frá. Brad fór á lyfið til að léttast og virkaði það vel, hann missti 68 kíló á hálfu ári, en svo byrjaði hann að finna fyrir ýmsum kvillum. Brad segir að hann hafi orðið fyrir verulegum og langvarandi skaða vegna notkunar á lyfinu.
Brad segir að hann hafi fengið lyfið, ásamt öðrum lyfjum, ávísað í gegnum fjarviðtal við lækni hjá LifeMD. Hann segir að skammtarnir hafi verið óhóflega stórir og að læknirinn hafi ekki framkvæmt eina einustu skoðun í kjölfarið.
Brad var fyrst ánægður með niðurstöðurnar og samþykkti meira að segja að koma fram í sjónvarpsauglýsingu fyrir LifeMD. En skömmu síðar byrjaði hann að finna fyrir einkennum eins og stöðugum verkjum í liðum, vöðvum og maga. Hann eyddi stundum 18 klukkutímum á dag í rúminu. Hann á einnig erfitt með gang og heyrir illa. Sjónin og minnið hafa líka versnað.
Dr. Yadira Lockard, sálfræðingur Brad, lýsir í dómskjölum mikilli andlegri vanlíðan hjá Brad eftir meðferðina. Hún segir hann hafa misst hæfni til að taka ákvarðanir, lesa eða skilja tölvupóst og einbeita sér. Hann lýsti einnig verk í munni, tannverk, sviða á gómi og því að geta aðeins innbyrt mjúkan mat.
Brad krefst rúmlega 35 milljónir dollara – eða rúmlega 4,3 milljarða krónur – í skaðabætur.
Læknirinn Annette Bosworth, sem kallar sig Dr. Boz á YouTube, hefur varað við langtímaáhrifum þyngdarað „Ozempic ætti ekki að vera leyfilegt í megrunarskyni.“
Hún sagði að eftir fimmtán ár mun fólk sjá að hún hafi haft rétt fyrir sér.
„Ozempic hefur ótrúleg áhrif á þyngdartap en það sem fólk áttar sig ekki á að það er ekki aðeins að missa fitu, heldur einnig vöðvamassa á mun meiri hraða en æskilegt er,“ segir hún.