fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fókus

Þekkt leikkona þóttist vera 12 ára stúlka og leiddi níðinga í gildru

Fókus
Mánudaginn 16. júní 2025 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska leikkonan Ariel Winter segir að þátttaka hennar í verkefni fyrir samtök sem berjast gegn kynferðisofbeldi gegn börnum hafi verið það erfiðasta á hennar ferli.

Þessi 27 ára leikkona, sem margir muna eftir úr þáttunum Modern Family þar sem hún fór með hlutverk Alex Dunphy, slóst í lið með samtökunum SOSA (Safe From Online Sex Abuse) við gerð heimildarþátta þar sem Ariel þóttist vera 12 ára stúlka á netinu.

Í fyrsta þættinum átti hún meðal annars í samskiptum við 31 árs karlmann í Oklahoma sem leitaðist eftir því að komast í nánari kynni við hana.

Í viðtali við bandaríska fjölmiðla lýsti Ariel því hvernig það var að setja sig í svona hlutverk. „Það getur verið ógnvekjandi að þykjast vera 12 ára og tala við mikið eldri menn, en það er að sama skapi gefandi að koma upp um menn sem leitast eftir slíkum samskiptum.“

Ariel segist sjálf hafa lent í klóm eldri manna og segir hún að markmið hennar með þátttökunni hafi verið að koma í veg fyrir að aðrar stúlkur lendi í sömu sporum og hún.

Í einu atriðinu sást Winter með ljósa hárkollu á höfðinu í herbergi sem búið var að innrétta eins og barnaherbergi. Átti hún í samskiptum við mann sem vildi vera kallaður „pabbi“.

„Það kom mér á óvart hversu margir karlar þarna úti eru að leitast eftir því að tala við 12 eða 13 ára stúlkur. Við erum að tala um mörg hundruð þúsund sennilega,“ sagði hún og bætti við að margir þeirra líti eðlilega út og virðast almennilegir.

„Þeir líta ekki út eins og níðingar. Þeir líta út eins og gaurinn í næsta húsi, og þeir eru venjulega giftir og sjálfir með börn. Einn gaur var tæplega fertugur og hann vildi fara með 11 ára stúlku í leiðangur til að kaupa brjóastahaldara fyrir hana. Það er ekki eðlilegt,“ segir hún.

Winter hóf feril sinn í Hollywood þegar hún var fjögurra ára og í viðtali við Daily Mail, sem News.com.au vitnar til, segist hún hafa fengið ógrynni af óviðeigandi skilaboðum frá fullorðnum mönnum í gegnum árin. „Hlutirnir sem ég varð vitni að í eigin persónu og á netinu hafa haft svo djúpstæð áhrif á mig að ég hef þurft að fara til sálfræðings út af því.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“
Fókus
Fyrir 1 viku

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990