fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fókus

Segir 98 prósent karlmanna elska það þegar konur gera þetta

Fókus
Fimmtudaginn 29. febrúar 2024 21:29

Jana Hocking.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

29. febrúar er hlaupársdagur og kemur aðeins einu sinni á fjögurra ára fresti. Í vestrænum ríkjum hefur hefðin verið sú, í gagnkynhneigðum samböndum, að karlmaðurinn biðji konunnar. En á hlaupársdag er blaðinu snúið við og er hefð fyrir því að það sé dagurinn þar sem konur fara á skeljarnar.

Stefnumótasérfræðingurinn Jana Hocking skrifar um þessa hefð og bendir á nokkrar frægar konur sem hafa „nýtt sér“ þennan dag, eins og söngkonan Pink, leikkonan Sarah Snook og leikkonan Kristen Bell.

„Þær eru ennþá giftar sínum mökum, þannig kannski er þetta góður fyrirboði,“ segir hún í pistli á News.com.au.

„En af hverju ættu bara pör að fá að njóta dagsins? Hvað ef við sækjum okkur innblástur í þessa hefð og eigum frumkvæðið þegar kemur að gaurnum (eða gellunni) sem við erum skotin í? Af hverju á þetta bara við bónorð?“

Hocking segir að í þau skipti þar sem hún hafi átt frumkvæði að samskiptum við karlmann hafi það gengið glimrandi vel.

„Ég hef aldrei heyrt karlmann kvarta yfir því að kona daðri við hann. Ég spurði Instagram fylgjendur mína og sögðu 98 prósent karlmanna að þeir myndu elska það ef kona myndi taka skarið,“ segir hún.

„Þannig í dag, prófum að stíga út úr þægindarammanum og tökum frumkvæði! Það þarf ekki að vera eitthvað klikkað, stutt skilaboð eða jafnvel nálgast einhvern á barnum?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“

Reglulegt starfsmannasamtal breytti öllu hjá Maren – „Þarna eru öll rauðu flöggin!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd

Fagnaði 20 ára afmæli Kattarkonunnar fáklædd
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum

Íbúar ensks þorps afar ósáttir við fjölmenna kynlífshátíð í næsta nágrennni – Kvarta undan orgum og frygðarstunum