fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Aðdáendur tóku eftir frekar ógeðslegu smáatriði á nærfatamynd Halle Berry

Fókus
Fimmtudaginn 4. janúar 2024 10:08

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netverjar hafa tekið eftir furðulegu smáatriði á mynd leikkonunnar Halle Berry, eða sumir vilja meina frekar ógeðslegu smáatriði.

Berry er með 8,6 milljónir fylgjenda á Instagram. Hún birti fyrir stuttu mynd af sér á nærfötunum einhvers staðar úti í náttúrunni, í kringum stóra steina.

Mynd/Instagram @halleberry

Myndin sló í gegn, enda Berry glæsileg kona með stóran aðdáendahóp. En fljótlega fóru netverjar að taka eftir svolitlu á myndinni, þremur kúkahrúgum.

Leikkonan, sem er 57 ára, skrifaði með myndinni: „Gat ekki falið þetta grjót“ og bætti við blikk-tjákni (e. emoji), og var að öllum líkindum að grínast með kúkinn fyrir framan hana.

En margir netverjar virtust ekki fatta grínið, eða einfaldlega skildu ekki hvers vegna hún hafi ákveðið að stilla sér upp fyrir seiðandi myndatöku svona nálægt kúk.

Einhverjir sögðust halda að þetta væri mannaskítur, en þá steig Berry inn í samræðurnar og sagði að þetta hefði ekki verið eftir mannfólk heldur líklegast villt dýr.

Það er ekkert nýtt fyrir Berry að vekja athygli með myndum sem hún birtir á samfélagsmiðlum. Nýársmynd hennar vakti gríðarlega athygli.

Sjá einnig: Halle Berry kveikti í Instagram með svakalegri lyftumynd

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 4 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum