Þar veltir hann fyrir sér hvort orðin „heldur betur“ verði orð ársins og segir hann að allt stefni í það. Ómar slær á létta strengi í pistlinum og segir meðal annars:
„Í lok síðustu ára hefur fest í sessi að velja svokölluð „orð ársins.“
Já, heldur betur.
Að undanförnu hefur engu verið líkara en eins konar stífla hafi brostið hjá fjölmiðlafólki landsins með sífelldri og víðtækri notkun orðanna „heldur betur“.“
Bendir hann á að þegar séu komnir fram fréttamenn sem byrja jafnvel alltaf á þessu sem fyrstu orðum tilsvara.
„Er einhver von til að þessu heldur betur fári fari að linna? Nei, heldur betur ekki. Það hefur nefnilega færst heldur betur í vöxt að nota þessi síbyljulegu orð heldur betur bæði í bæði jákvæðri og neikvæðri umgjörð.“
Ómar endar pistilinn á þessum orðum:
„Þess vegna er það heldur betur ekki tilviljun hve mikið verðandi orð ársins 2024 eru notuð í þessum stutta pistli. Já, heldur betur.“