fbpx
Föstudagur 24.október 2025
Fókus

Fleiri stjörnur sem Hollywood hafnaði – Sumar gátu sjálfum sér um kennt en aðrar fórnarlömb aðstæðna

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Fimmtudaginn 30. mars 2023 22:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þær eru margar stjörnurnar sem hafa horfið úr sviðsljósinu af ýmsum ástæðum. Sumar þeirra geta sjálfum sér um kennt, aðrar voru fórnarlömb aðstæðna og enn aðrar tóku einfaldlega rangar ákvarðanir.

Sjá: Stjörnunar sem Hollywood hafnaði – Ólíkar ástæður sendu stórleikara á svarta listann

Roseann Barr á hátindi frægðarinnar og svo aftur 2018, fyrir færslurnar sem eyðilögðu feril hennar.

Roseanne Barr

Roseanne varð heimsþekkt fyrir leik í samnefndri leikinni gamanþáttaseríu sem gekk í níu ár, frá 1988 til 1997. Árið 2018 var ákveðið að fara að stað með framhald af seríunni og fylgjast með hvar fjölskyldan væri stödd ríflega áratug síðar.

Roseanne Barr var þá þegar orðin umdeild vegna einarðs stuðnings við Trump en aðeins örfáum dögum fyrir frumsýningu fyrsta þáttarins í framhaldsseríunni setti Roseanne afar ósmekklegan brandara á samfélagsmiðla. Var þar ekki betur að sjá en að hún líkti einum nánasta samstarfsmanni Barcak Obama, Valerie Jarrett, við apa.

Viðbrögðin voru vægast sagt neikvæð og ABC sjónvarpsstöðin rak Roseanne aðeins örfáum klukkustundum eftir að færslan birtist. Roseanne baðst afsökunar, kenndi um svefnlyfjum, en án árangurs. Ákveðið var að að halda áfram með sjónvarpsþættina en án aðalleikkonunnar.

Síðast fréttist af Roseanne Barr búandi í kjallara móður sinnar, gjaldþrota og skuldugri upp fyrir eyru.

Katherin Heigl

Katherine Heigl

Katherine Heigl öðlaðist fyrst heimfrægð í sjónvarpsþáttunum Grey’s Anatomy og þaðan lá leiðin yfir í kvikmyndir. Svo virtist sem ný drottning rómantískra gamanmynda væri stigin fram eftir myndir á við Knocked Up og 27 Dresses en ferill hennar varð skammlífur.

Heigl þótt afar erfið í samstarfi, var ókurteis við samstarfsfólk, gerði óheyrilegar kröfur, tók frekjuköst í miðjum tökum, mætti jafnvel ekki á sett og talaði illa um samstarfsfólk sitt í viðtölum.

Svo fór að ekki nokkur sála vildi vinna með Heigl og hún hvarf úr sviðsljósinu.

Nefið fór með feril Jennifer Grey

Jennifer Grey

Jennifer Grey sló rækilega í gegn í myndum á við Ferris Bueller’s Day Off og sem hin ógleymanlega Baby í Dirty Dancing á níunda áratug síðustu aldar. Hún var einnig trúlofuð Johnny Depp á tímabili.

En Jennifer var aldrei sátt við einkennandi nefið á sér og snemma á tíunda áratugnum ákvað hún að láta laga það. En eins og Grey orðaði það sjálf síðar, þá gekk hún inn til lýtalæknisins sem stjarna og kom út sem kona sem enginn þekkti.

Bara enn annar sætur kvenmaður í Hollywood.

Nefsvipur Grey hafði verið það einkennandi að hún var sem önnur manneskja eftir aðgerðina. Tilboð um hlutverk hurfu og þótt að Grey komi fram í einstaka hlutverkum í dag, þekkja hana fæstir í sjón.

Grey segir að um stærstu mistök lífs síns hafi verið að ræða. Og lái henni enginn.

Sagt er að Hitchcock hafi eyðilagt ferið Tippi Hedren viljandi þegar hún synjaði áreitni hans.

Tippi Hedren

Tippi Hedren var uppáhaldsleikkona kvikmyndaleikstjórans Alfred Hitchcock. Hún er kannski enn þekktari fyrir að vera móðir leikkonunnar Melanie Griffith.

Hitchcock mun hafa haft Tippi á heilanum og áreitt hana stöðugt við tökur. Tippi tók áreitninni illa og varð Hitchcock svo móðgaður að sagt er að hann hafi komið í veg fyrir Óskarsverðlaunatilnefningu hennar, það valdamikill var Hitchcock í Hollywood.

Hann sá einnig til þess að henni voru engin hlutverk boðin og smám saman gleymdist þessi stórleikkona, allt vegna óvelkominnar áreitni eins áhrifamanns í kvikmyndaiðnaðinum.

Cee-Lo Green

CeeLo Green

CeeLo Green var heimsfrægur fyrir plötu sína F**K You árið 2010. Platan seldist í bílförmum, CeeLo var bókaður í tónleikaferðir næstu árin og var meðal annars dómari í sjónvarpsþættinum The Voice.

En það átti allt eftir að breytast.

Fyrst byrjað CeeLo að setja á samfélagsmiðla alls kyns niðurlægjandi ummæli um konur og smám saman stigu sífellt fleiri konur fram og sökuðu hann um kynferðislega áreitni. Hann var þegar rekinn úr The Voice, plötufyrirtæki hans rifti samning við hann og tónleikahaldarar sömuleiðis og útvarpsstöðvar hættu að spila tónlist hans.

Ekki hefur heyrst píp frá Cee-Lo síðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Demi Moore neglir útlitið sem kona ársins

Demi Moore neglir útlitið sem kona ársins
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gímaldin frumflytur verk í Hannesarholti – gímaldin Goes Orchestral

Gímaldin frumflytur verk í Hannesarholti – gímaldin Goes Orchestral
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórstjarna úr Hollywood nær óþekkjanleg í neðanjarðarlest New York

Stórstjarna úr Hollywood nær óþekkjanleg í neðanjarðarlest New York
Fókus
Fyrir 2 dögum

Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen 2025

Lovísa Rós er Ungfrú Ísland Teen 2025
Fókus
Fyrir 3 dögum

Heimsins besti dagur í helvíti – Hvað gerir ofurkona þegar lífið breytist með kómísku slysi?

Heimsins besti dagur í helvíti – Hvað gerir ofurkona þegar lífið breytist með kómísku slysi?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lítt þekkt ættartengsl: Gugga í gúmmíbát náskyld Þorsteini frá Hamri og Matta Matt

Lítt þekkt ættartengsl: Gugga í gúmmíbát náskyld Þorsteini frá Hamri og Matta Matt
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elli Egils opnar sig um fjölskyldulífið: „Við höfum svo ættleitt tvær stelpur af þessum átta börnum“

Elli Egils opnar sig um fjölskyldulífið: „Við höfum svo ættleitt tvær stelpur af þessum átta börnum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – Glæsilegar gellur á Bridgerton-viðburði og hitað upp fyrir hrekkjavöku

Vikan á Instagram – Glæsilegar gellur á Bridgerton-viðburði og hitað upp fyrir hrekkjavöku