fbpx
Laugardagur 01.apríl 2023
Fókus

Geggjað að gubba blóði yfir Harrison Ford

Fókus
Föstudaginn 17. mars 2023 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson var gestur í kvikmyndaþættinum Bíóbæjar á Hringbraut. Hann fer með aðalhlutverkið í Volaða landi, sem er ný íslensk kvikmynd.

Í þættinum var Ingvar spurður hvað stæði upp á ferlinum og hvort það væri jafnvel þegar hann „gubbaði blóði“ yfir leikarann Harrison Ford í atriði í kvikmyndinni K-19: The Widowmaker sem kom út árið 2002.

„Það var mjög geggjað,“ svaraði Ingvar og bætti við að Harrison hafi „verið ánægður með það.“

En varðandi það sem mest stendur uppúr á ferlinum nefndi Ingvar að það væru líklega Englar Alheimsins, kvikmynd sem kom út árið 2002 upp úr samnefndri bók eftir Einar Má Guðmundsson.

Sú mynd hafi komið Ingvari á framfæri og vakið athygli á honum.

„Það verður alltaf voðalega stórt fyrir mér“

Bíóbærinn
play-sharp-fill

Bíóbærinn

Ingvar var einnig spurður um muninn á því að leika í íslenskri kvikmynd, á borð við Volaða land, annars vegar og svo stórri Hollywood mynd hins vegar.

Ingvar segir að hann hafi nýlega komið úr verkefni síðastliðið sumar þar sem hann hafi tekið þátt í kvikmynd eftir leikstjórann Zack Snyder sem heitir Rebel Moon og er væntanleg á þessu ári. Myndin er vísindaskáldskapur sem gerist í geimnum og verður í tveimur hlutum sem voru teknir upp samhliða.

„Ég hef verið í nokkrum stórum, en þetta var það langstærsta,“ segir Ingvar um verkefnið og segir að það hafi verið um 900 manna starfslið á vettvangi.

„Munurinn er bara sá – stærðin er svo mikil, fólksfjöldinn er mikill, skipulagið er alveg svakalega gott og verður að vera, en þegar kemur að sjálfri kvikmyndagerðinni þá er þetta bara eins. Þetta er bara sama tungumálið – kvikmyndamálið og var sem er í heiminum er þetta eins.“

Ingvar segir að ferlið sé það sama þótt að um ódýra mynd sé að ræða eða rándýra

Bíóbærinn II
play-sharp-fill

Bíóbærinn II

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Edda Falak braut lög

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hafdís Björg og Kristján Einar eru að deita

Hafdís Björg og Kristján Einar eru að deita
Fókus
Í gær

Fleiri stjörnur sem Hollywood hafnaði – Sumar gátu sjálfum sér um kennt en aðrar fórnarlömb aðstæðna

Fleiri stjörnur sem Hollywood hafnaði – Sumar gátu sjálfum sér um kennt en aðrar fórnarlömb aðstæðna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Brúðkaupsheit hans hafa hneykslað milljónir – Brúðinni sagt að hlaupa í burtu

Brúðkaupsheit hans hafa hneykslað milljónir – Brúðinni sagt að hlaupa í burtu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Opnar sig um ástarmálin fyrir tíð eiginmannsins – „Ég gerði alltaf sömu mistökin“

Opnar sig um ástarmálin fyrir tíð eiginmannsins – „Ég gerði alltaf sömu mistökin“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þessi eru tilnefnd til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna

Þessi eru tilnefnd til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svarar fyrir „ógeðslega“ baðherbergið sitt

Svarar fyrir „ógeðslega“ baðherbergið sitt