fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fókus

Camilla Rut viðurkennir mistök – „Mér hefur liðið eins og ég sé að bregðast sjálfri mér og ykkur öllum“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 10. október 2023 13:12

Camilla Rut. Skjáskot/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir segir að henni þyki leitt að gallaðar flíkur frá vörumerki hennar, Camy Collections, hafi farið í sölu og að viðskiptavinir séu ósáttir.

Um er að ræða joggingbuxu og peysu í stíl sem viðskiptavinir hafa verið að kvarta undan á Facebook. Flíkurnar koma saman og kosta 17.490 krónur.

„Mér hefur liðið eins og ég sé að bregðast sjálfri mér og ykkur öllum,“ sagði Camilla um málið í Story á Instagram í gær.

„Eru fleiri að lenda í þessu?“

Um helgina voru kósýgallarnir frá Camy Collections til umræðu í Facebook-hópnum Beauty Tips. 

„Keypti nýlega galla frá Camy collection, hef aldrei þvegið hann og hann endaði hnökraður eftir nokkra daga í notkun og merkið farið að rakna upp, finnst þetta frekar léleg ending á dýrum galla. Eru fleiri að lenda í þessu, hef ekki fengið nein svör frá henni sjálfri?“ kom fram í upphafsinnlegginu.

Myndin inni á Beauty Tips.

Sú sem skrifaði færsluna sagði einnig að það væri ekki miði innan á flíkinni og það liti út eins og einhver hafi fjarlægt hann. Hún gæti því hvorki séð hvaða efni væri í fatnaðinum né þvottaleiðbeiningar.

„Fer að furða mig á því að það sé enginn miði, það er búið að klippa hann úr og sjáið að það er heill saumur hliðina […] Það er enginn miði á gallanum og engar upplýsingar um það á siðunni þeirra…smá spes.“

Mynd sem netverjinn birti, þar sem miðinn átti að vera. Skjáskot/Facebook

Aðrir meðlimir hópsins höfðu svipaða sögu að segja:

„Einhver alversta fjárfesting sem ég hef gert! Fór í þennan galla einu sinni og svo ekki meira.“

„Ég spurði inná síðunni hennar af hverju hún fjarlægi upplýsingamiðann úr göllunum sínum, commenti eytt og ekkert svar.“

Camilla Rut tjáði sig um málið á Instagram.

Camilla rýfur þögnina

Camilla Rut stofnaði fatafyrirtækið Camy Collections árið 2021 og naut fyrsta fatalínan, Gyðjan, mikilla vinsælda. Í vor keypti hún sig inn í íslenska fatamerkið MTK eða MuffinTopKiller.

Sjá einnig: Spennandi tímar fram undan hjá Camillu Rut

Hún er einnig áhrifavaldur með rúmlega 32 þúsund fylgjendur á Instagram. Athafnakonan fór yfir sögu málsins í Story í gær.

Camilla sagði að hún hafi þurft að finna aðra saumastofu til að framleiða gallana, þar sem saumastofan sem sá um Gyðju-fatalínuna væri ekki að gera þess konar vörur.

„Ég fann eftir mikla rannsóknarvinnu, að ég hélt, frábæra verksmiðju, saumastofu, sem sá um allan saumaskapinn fyrir mig.“

Hún sagði að hún hafi pantað nokkrar prufur. „Síðasta prufan sem ég fékk, sem varð til þess að ég lagði inn stóru pöntunina, var fullkomin í alla staði.“

„Stóra pöntunin fór af stað, kom til landsins, og eins og svo margir í þessum bransa voru búnir að vara mig við, það gæti mögulega gerst í svona stórum pöntunum,“ sagði hún og bætti við að hún hafi ekki verið hrædd um að það myndi gerast.

„Mér fannst ég hafa unnið grunnvinnuna, en svona lærir maður.“

Skjáskot/Instagram

Hluti af sendingunni gallaður

Camilla sagði að hluti af sendingunni hafi verið gallaður. „Gæðin eru allt önnur í hluta af sendingunni heldur en ég var búin að samþykkja, [öðruvísi en prufan sem ég fékk]. Það eru ekki gæði sem ég var tilbúin að sætta mig við. Þannig ég hafði samband við verksmiðjuna og lýsti yfir óánægju minni þar og þau báðust innilega afsökunar og lofuðu öllu fögru og þau ætluðu að senda mér aðra sendingu til að bæta upp fyrir gölluðu eintökin. En því miður var skaðinn skeður og  margir búnir að fá til sín gölluð eintök,“ segir hún og tekur fram að „gölluð eintök er það sem ég kalla eintökin sem standast ekki gæðakröfur.

„Ég hélt í einlægni og innilegheitum að ég væri að selja góðu eintökin. Því að það allra síðasta sem ég vil er að selja vörur sem standast ekki væntingar eða eru gallaðar. Ég er alls ekki í þessu til þess, það er það síðasta sem ég vil.“

Camilla og kærasti hennar í Camy Collections göllunum. Skjáskot/Instagram

Umræðan á Facebook

Camilla sagðist skilja að fólk hafi gagnrýnt gölluðu kósýgallana en það sé samt erfitt þar sem það hefur neikvæð áhrif á hana og vörumerkið.

„Eftir að nýja pöntunin fór af stað og á leiðinni til landsins þá voru farnir að poppa upp Facebook-þræðir þar sem var verið að ræða gallana í göllunum. Sem ég skil 100 prósent, og er að hluta til mjög þakklát fyrir líka, því ég vil líka fá  að heyra ef það er eitthvað sem stenst ekki væntingar, hvorki mínar né viðskiptavinarins. Bara 100 prósent.

En á sama tíma hefur þetta vissulega mjög mikil áhrif, bæði á mig og vörumerkið, og er rosa sárt þegar maður hefur lagt ást og athygli í eitthvað, sem í draumaheimi hefði gengið fullkomlega upp. En það er ekki alltaf staðan. Þannig staðan er sú að ég er búin að kippa göllunum úr sölu.“

Camilla sagði að það verður haft samband við alla sem keyptu gallann um helgina.

„Ég tók þá úr sölu, ég þori ekki að taka áhættuna að selja einhverja galla á fullu verði, þar sem eru ennþá að leynast einhverjir gallar sem ég er ekki að sjá, eða eru ekki að sjást fyrr en [flíkurnar] eru komnar í notkun. Ég er búin að segja upp framleiðslunni líka.“

Hún ætlar ekki að láta þetta stoppa sig og heldur ótrauð áfram. „Engar áhyggjur. Ykkar kona lætur svona smávegis byrjendamistök ekki stoppa sig,“ sagði hún.

„Ég tek þetta með mér sem ákveðin reynslubanka í næsta verkefni. Ég ætla að leggjast yfir þetta og fara yfir stöðu mála og svo gæti vel verið að ég opni bara hurðina og það verði hægt að kaupa sér kósýgalla á einhverjum fáránlegum spottprís undir kostnaðarverði á næstum dögum. Ef einhver myndi vilja nýta sér það. Ég læt ykkur vita.“

Falleg skilaboð

Camilla birti nokkur falleg skilaboð sem hún fékk frá fylgjendum í kjölfar tíðindanna. Hægt er að hlusta á hana segja alla söguna í Story á Instagram, eða með því að smella hér. Það dettur þó út af síðunni hennar eftir nokkrar klukkustundir.

Skjáskot/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi

Rannsókn bendir til þess að þetta vinsæla heilsuráð geti verið fitandi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“

Brynhildur og Matthías kveðja Kópavog – „Vonandi taka frábærir nýir eigendur við, við ætlum að flytja út í sveit“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 6 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður

Sjaldséð mynd: Sonur Heidi Klum og Seal útskrifaður
Fókus
Fyrir 1 viku

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“

Launin komu henni mest á óvart við Ísland – „Það munar 4,2 milljónum á ári“