„Mér fannst ég vera orðin of „þung“ fyrir lífið mitt, of þung og þreytt fyrir allt sem ég ætlaði að upplifa og að gera, að ferðast og að lifa. Líkaminn minn vildi bara liggja og sofa og mér var alls staðar illt. Ég vissi að ég þyrfti að gera eitthvað drastískt til að koma mér úr þægindarammanum sem var orðinn að fangelsi. Þá sendi ég stutta en skemmtilega umsókn og fékk strax svar frá framleiðanda þáttarins „The Biggest Loser Germany, eða eins og þátturinn er kallaður úti „Leben Leicht Gemacht“, segir Ása Ástardóttir uppistandari, sem er 49 ára og búsett í Köln í Þýskalandi.
Ása gerði sér lítið fyrir og lenti í þriðja sæti í keppninni. „Ég var elst af 30 keppendum og líka léttust (122kg), samtals missti ég 45 kg og hef náð að halda því sæmilega.“
„Ég persónulega elskaði mest það sem kallað er „Challenges“ – þú veist aldrei hvernig keppni þú ert að fara í eða hvað verður ætlast af þér – algjör óvissa. Stundum gerði ég mig að fífli í þessum keppnum en oftast náði ég að vaxa yfir mig. Og hér lærði ég mest um sjálfa mig, fann sjálfstraustið og sjálfsöryggið mitt á ný. Ég er mjög þakklát fyrir þessa ógleymanlegu reynslu og líka fyrir fólkið sem ég kynntist. Við erum nokkur sem halda sambandi.“
Ása er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið í Þýskalandi í fjölmörg ár.
„Köln er borgin mín – ég varð ástfangin af fólkinu og menningunni – í Köln er Karneval bara allt árið. Borgin er sönn fyrirmynd frjálslyndis og mjög tækifærarík sérstaklega í skapandi greinum. En Ísland er hjartastaðurinn minn. Ég kem minnst tvisvar á ári ef ekki oftar,“ segir Ása sem lýsir sér sem skapandi veru, lífsglaðri og ævintýragjarnri. Hún er alls ekki feimin við sviðsljósið.
Ása er nú komin heim til Íslands og ætlar að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta sinn.
„Ég breyttist úr letihaug í íþróttaálf. Eftir þáttinn gerði ég mér grein fyrir því að sjálfsvinnan væri bara rétt svo að byrja. Það þarf áætlun til að halda árangrinum. Innst inni hef ég lengi öfundað fólk sem fer út að hlaupa. Og þá ákvað ég bara að prófa það og byrjaði að bæta úthaldið og að ná árangri með því að labba og hlaupa til skiptis. Fyrsta 10 km keppnishlaupið mitt var í Köln í sumar en nú er markmiðið að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og er það í fyrsta sinn sem ég hleyp til styrktar einhverjum. Ég er sem sagt eiginlega reynslulaus og algjör byrjandi en ætla að skemmta mér í hlaupinu og hafa gaman af því að vera með. Þetta er mín eigin Biggest Loser Challenge,“ segir Ása.
Ása hleypur til styrktar Tilveru og aðspurð um af hverju hún valdi það félag:
„Börn eru framtíðin okkar en því miður eiga margir í erfiðleikum að eignast barn. Tilvera veitir almenna fræðslu og heldur úti mánaðarlegum stuðningsfundum. Ég valdi Tilveru ekki bara af því að ég þekki fólk sem glímir við ófrjósemi heldur finnst mér svo mikilvægt að það sé til félag fyrir alla til að afla sér upplýsingum og að fá stuðning.
Endilega fylgist með mér á Instagram þar sýni ég ekki bara daglegu baráttuna við aukakílóin heldur er ég líka meðal annars að undirbúa uppistand á Cologne Comedy Festival sem er stærsta comedy hátíðin í Þýskalandi.“