fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Þetta reddast

Jakob Snævar Ólafsson
Mánudaginn 10. júlí 2023 10:03

Skjáskot Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilefni goslokahátíðar sem lauk í Vestmannaeyjum um nýliðna helgi og þess að í ár eru liðin 50 ár frá því að eldgos hófst í Heimaey hefur Björn Steinbekk framleitt, í samstarfi við 66°Norður, myndband um eldgosið sem er aðgengilegt á heima- og Youtube-síðu fyrirtækisins. Í tilkynningu segir eftirfarandi um eldgosið og Vestmannaeyinga:

„Fátt er íslenskara en setningin „Þetta reddast“ og á fáum stöðum á þetta betur við en í Vestmannaeyjum þar sem harðgerð náttúran, sjóræningjar, ótal skipsskaðar og eldgos í túnfæti bæjarins hefur mótað viðhorf og reynt á æðruleysi þeirra sem eyjuna fögru byggja og elska.

Það eru þessir atburðir sem skapa ákveðna ímynd um Vestmannaeyjar og fólkið sem þar býr. Fólkið sem náttúruöflin hafa sent þolraunir ýmiskonar og þar sem húmor, oft illskiljanlegur þeim sem ekki þekkja til, er notaður til að létta lund og brjóta upp stundir sem reyna á þolgæði og lífsgleði.

Engin vandamál, bara lausnir

Í Eyjum eru engin vandamál, bara lausnir og glasið alltaf hálft eða barma fullt. Skiptir engu hvort það sé að snara upp nokkrum fótboltamótum á hverju sumir og taka móti þúsundum manns eða fylla Dalinn með glöðum landkröbbum, Eyjameyjum og sveinum í takti við landsins bestu listamenn. Allir leggjast á eitt og úr verða minningar sem lifa með fólki um aldur og ævi í einstakri umgjörð og fegurð.

Fátt hefur reynt á þetta æðruleysi eyja kvenna og karla en gosið í Heimaey sem hófst þann 23. janúar 1973 og lauk 3.júlí sama ár. Aldrei áður á seinni tímum hafði eldgos hafist í byggð eða bæ á Íslandi. En með fumlausum viðbrögðum, samtakamætti og einstöku hugarfari fólksins í Eyjum tókst að flytja rúmlega 5.000 manns frá Heimaey og koma þeim í skjól upp á landi. Segja má að þessa nótt reddaðist ótrúlega margt.

Vestmannaeyjar er einstakur staður. Þar er ótrúlegt úrval veitingastaða sem hver og einn hefur sína sérstöðu og á sumum sést, í einstakri matargerð, ást kokksins á eyjunum fallegu og hafinu sem þær umlykur og hvað þaðan er hægt að sækja til að skapa rétti þar sem sérstaða þessa samfélagsins í Eyjum skín í gegn – frumleiki og sjálfsbjargarviðleitni.

Þarna kallast líka á klettarnir, björgin, eldfjöllin og sjórinn í einstakri fegurð. Það er þarna sem lífið er yndislegt, lundinn litar himinninn á sumardegi og úteyjarnar kasta ævintýrablæ á sjóndeildarhringinn.

Það að fyrir 50 árum síðan hafi meira en 400 hús brunnið eða horfið undir hraun og ösku í Eyjum og konur og menn staðið vaktina við að bjarga húsum, munum, minningum og höfninni um veturinn, vorið og sumarið segir okkur að þrátt fyrir hvað sem kann að bjáta á, muni þetta reddast!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fríða datt í lukkupottinn í Góða hirðinum –  „Þetta er fundur ársins“

Fríða datt í lukkupottinn í Góða hirðinum –  „Þetta er fundur ársins“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Raunverulegri fjarfundir með gervigreind og þrívídd

Raunverulegri fjarfundir með gervigreind og þrívídd
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fann smokkapakka í tösku eiginkonunnar: „Þá vissi ég að eitthvað væri í gangi“

Fann smokkapakka í tösku eiginkonunnar: „Þá vissi ég að eitthvað væri í gangi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Saknaðarilmur með flestar tilnefningar til Grímuverðlauna í ár

Saknaðarilmur með flestar tilnefningar til Grímuverðlauna í ár
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise

Lýtalæknar afhjúpa ástæðuna á bak við „lafandi“ húð Tom Cruise
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bergur Þór er nýr leikhússtjóri LA

Bergur Þór er nýr leikhússtjóri LA
Fókus
Fyrir 4 dögum

Svona leit hún út fyrir breytingarnar

Svona leit hún út fyrir breytingarnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum