fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fókus

Rýfur þögnina um myndirnar af Liam Payne og annarri konu

Fókus
Þriðjudaginn 24. maí 2022 08:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvarinn Liam Payne, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa verið í vinsælu strákahljómsveitinni One Direction, og fyrirsætan Maya Henry eru hætt saman.

Fréttir af sambandsslitum þeirra koma í kjölfar þess að myndir af honum og annarri konu fóru á dreifingu um samfélagsmiðla.

„Þetta er ekki ég“

Í gær deildi aðdáendasíða söngvarans nokkrum myndum af honum og annarri konu, en merkti Mayu við færsluna. Á einni myndinni má sjá Liam halda utan um konuna, á hinum myndunum eru þau að haldast í hendur og sitja saman á skemmtistað.

Maya skrifaði við færsluna: „Ég elska alla aðdáendur svo mikið, en vinsamlegast hættið að senda mér þessar myndir af unnusta mínum halda utan um aðra konu. Þetta er ekki ég og það er nógu erfitt að vita að þetta gerðist án þess að sjá það. Þetta er komið gott.“

Liam, 28 ára, og Maya, 21 árs, byrjuðu saman árið 2019 og trúlofuðust ári seinna. Í júní 2021 tilkynntu þau að þau væru hætt saman. „Ég er svo svekktur út í sjálfan mig að ég hafi sært aðra,“ sagði Liam í hlaðvarpsþættinum The Diary of a CEO eftir sambandsslitin.

Hann sagði einnig að hann „hefur aldrei verið góður í samböndum“ og að hann þyrfti að vinna í sjálfum sér áður en hann myndi byrja í öðru sambandi.

Leiðir þeirra lágu saman á ný í ágúst 2021, rétt rúmum mánuði eftir að þau hættu saman.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by @payno18

Konan á myndinni er fyrirsætan Aliana Mawla, 24 ára, og kom fram í tónlistarmyndbandi söngvarans árið 2018. Hún virðist staðfesta ástarsamband þeirra á Instagram með því að birta myndina af þeim í Story.

Skjáskot/Instagram

Færsla aðdáendasíðunnar hefur vakið mikla athygli og eru nokkrar kenningar á lofti um hvað sé í gangi. Eins og hvort myndirnar séu af Liam halda framhjá Mayu, eða hvort að myndirnar hefðu verið teknar þennan mánuð sem þau voru hætt saman árið 2021.

Talsmaður söngvarans staðfesti í samtali við People að þau hefðu hætt saman fyrir rúmlega mánuði síðan. Miðað við þær fregnir getur verið að myndirnar séu teknar eftir nýjustu sambandsslitin og telja sumir netverjar orðanotkun Mayu vera villandi, þar sem hún sagði „unnusti minn“ í athugasemdinni við færsluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“