fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Rakel Páls stimplar sig inn sem ein af jólaröddum Íslands

Fókus
Föstudaginn 2. desember 2022 17:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með jólin í hjarta mér er ný jólaplata úr smiðju Rakelar Páls og Gunnars Inga Guðmundssonar en söngkonan Rakel Páls syngur öll fimm lög plötunnar. Rakel gaf út lagið Jólaveröld vaknar eftir Gunnar Inga í fyrra og ákváðu þau í ár að safna saman lögum og hnoða í jólaplötu um þessi jól.

„Okkur langaði til að gera plötu með nýjum íslenskum frumsömdum jólalögum og úr varð þessi notalega plata með fjórum lögum eftir Gunnar Inga og textum eftir Silju Rós Ragnarsdóttur, auk þess gerði Nína Richter texta við fyrsta lag plötunnar, Jólaveröld vaknar,“ segir Rakel.

Eitt laganna er sænskt jólalag eftir Sönnu Viktoriu Nielsen, Liselott Elisabeth Liljefjall og Joakim Ramsell en íslenskan texta gerði Gústaf Lilliendahl. Upptökur fóru fram í sumar og stóðu fram á haust, í Studíó Bambus og sá Stefán Örn Gunnlaugsson um upptökur.

Rakel heldur útgáfu/jólatónleika á Nauthól þann 21. desember næstkomandi kl 20:30 en með henni spila Gunnar Ingi, Birgir Þóris, Bent Marinós og Þorvaldur Halldórsson. Á dagskránni verða öll lög plötunnar ásamt uppáhalds jólalögum Rakelar. Miðasala er í fullum gangi inn á rakelpals.is.

Rakel flytjandi plötunnar hefur lengi verið í tónlistarbransanum en allt saman hófst þetta með sigri í Söngkeppni Samfés árið 2004, þar sem hún bar sigur úr bítum. Eftir það fór boltinn að rúlla. Rakel hefur stundað nám í Tónlistarskóla FÍH, stofnaði hljómsveitina Hinemoa með góðri vinkonu og sungið raddir í ýmsum verkefnum. Til dæmis með Röggu Gröndal, Rigg viðburðum, Stuðmönnum, Láru Rúnars og fleirum, og nú síðast á Grease tónleikasýningu í Laugardalshöllinni undir leikstjórn Gretu Salóme. Rakel hefur mörgum sinnum tekið þátt í Söngvakeppninni, ýmist sem bakrödd, í dúett, með hljómsveit eða sóló söngvari. Enda er hún mikill Eurovision aðdáandi.

Gunnar Ingi Guðmundsson, höfundur laganna, lærði bassaleik, píanóleik og lagasmíðar við tónlistarskóla FÍH og Berklee college of music í Boston. Hann hefur samið lög fyrir Ragnheiði Gröndal, Sjonna Brink, Arnar Dór, og fleiri, auk þess sem hann samdi Þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið 2003 sem flutt var af Skítamóral sem hlaut töluverða vinsælda.

Með jólin í hjarta mér á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki