fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Will Smith útskýrir loksins Óskars-löðrunginn fræga – „Ég var bara farinn“

Fókus
Þriðjudaginn 29. nóvember 2022 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór allt á hliðina á síðustu Óskarsverðlaunahátíð eftir að leikarinn Will Smith gerði sér lítið fyrir og skellti sér upp á svið og rak grínistanum Chris Rock hörkulegan kinnhest eftir að Rock gerði grín að blettaskalla eiginkonu hans.

Kinnhesturinn heyrðist um allan heim, ef svo mætti komast að orði, og var um fátt annað rætt í kjölfar hátíðarinnar. Svo fór að Will Smith var bannaður frá hátíðinni næsta áratuginn og hafði atvikið gífurlega neikvæð áhrif á orðspor Smith sem hafði þangað til verið þekktur sem viðkunnanlegur og vinalegur leikari.

Var að ganga í gegnum eitthvað

Nú hefur leikarinn mætt í sitt fyrsta stóra viðtal frá atvikinu, en hann var gestur hjá Trevor Noah i The Daily Show á dögunum. Þar útskýrði hann að hann hafi hreinlega verið að ganga í gegnum eitthvað í sínu einkalífi þegar hann mætti á hátíðina.

„Ég var að ganga í gegnum dálítið þetta kvöld, þú skilur? Ekki að það réttlæti framkomu mína neitt“

Smith útskýrði að það hafi verið margir þættir sem höfðu áhrif en hann hafi hreinlega misst stjórn á skapi sínu.

„Ég skil að þetta var sláandi fyrir fólk. Ég var bara farinn. Þetta var reiði sem hafði verið að safnast upp í mjög langan tíma.“

Smith sagði að í kjölfarið hafi hann hitt barnungan frænda sinn sem hafi spurt hann hvers vegna hann hefði „slegið þennan mann“ og þetta hafi bara verið „algjört rugl“

Margt sem spilaði þarna inn

Smith sagði að ný skilji hann betur það orðatiltæki að sært fólk særi fólk.

„Þetta voru margir hlutir. Þetta var litli drengurinn sem horfði upp á föður sinn berja móður sína, þú veist? Allt þetta sauð upp á yfirborðið á þessari stundu. Þetta er ekki sá maður sem ég vil vera.“

Smith hefur áður opnað sig um það að alast upp við heimilisofbeldi, en faðir hans réðst á móður hans fyrir framan hann. Hann segir um kinnhestinn að fólk geti aldrei vitað hvað einhver er að ganga í gegnum – en hann útskýrði þó ekki nánar hvað hann meinti með því, en sagðist sjálfur hafa verið að ganga í gegnum nokkuð þetta tiltekna kvöld. Hann hafi í kjölfarið þurft að fyrirgefa sjálfum sér.

„Treysti mér það er enginn sem hatar þá staðreynd að ég er mannlegur meira en ég. Ég hef alltaf viljað vera Ofurmennið. Ég hef alltaf viljað koma ríðandi á hesti til að bjarga dömunni úr klípu. Og ég þurfti að verða auðmjúkur og viðurkenna að ég er gölluð mannvera og ég hef enn tækifæri á því aðf ara út í heiminn og leggja þar mitt af mörkum með þeim hætti að það fyllir hjarta mitt og vonandi hjálpar öðru fólki.“

Vonar að athæfi hans hafi ekki neikvæð áhrif á myndina

Will Smith er um þessar myndir að kynna nýju mynd sína – Emancipation – sem kemur út í næstu viku. Hann hefur sagt að hann hafi áhyggjur af því að kinnhesturinn eigi eftir að hafa áhrif á möguleika myndarinnar að vinna til verðlauna og þykir honum það glatað.

„Mikið af bestu listamönnum í heiminum hafa gert eitt af bestu verkum ferils síns. Ég vona að verk þeirra verði heiðrað og vinna þeirra verði ekki lituð af hryllilegri ákvörðun sem ég tók.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 2 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig
Fókus
Fyrir 4 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jón Arnar byrjaði skyndilega að missa hárið – Hefði gert þetta öðruvísi í dag

Jón Arnar byrjaði skyndilega að missa hárið – Hefði gert þetta öðruvísi í dag
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sjaldséð sjón – 15 ára dóttir Angelinu Jolie og Brad Pitt mætti með móður sinni

Sjaldséð sjón – 15 ára dóttir Angelinu Jolie og Brad Pitt mætti með móður sinni