fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fókus

Furðulegar ástæður fyrir banni á barnabókum: Saurlífi Tarsans, fíkniefnaneysla Rauðhettu og kynferðislega ögrandi könguló

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Þriðjudaginn 18. október 2022 21:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stundum skiljum við Evrópubúar illa þjóðina handan Atlantshafið og hennar þankagang. Til að mynda hafa þekktar og virtar barnabækur verið bannaðar þar af ástæðum sem mörgum okkar gæti fundist fremur furðurlegar.

Skoðum nokkur dæmi.

Hvar er Valli?

Allt frá 1987 hefur fólk gleymt sér í leitinni að Valla, sem í röndóttu skyrtunni sinni og með húfuna og gleraugun er sífellt týndur í mannhafi. Hvað gæti verið saklausara?

En ein fyrsta bókin um Valla var bönnuð í skóla nokkrum í East Hampton í New York.

Ástæðan? Á blaðsíðu fjögur, þar sem Valli er enn og aftur týndur og nú á strönd, má sjá berbrjósta konu. Reyndar voru það ekki brjóstin sem gerðu konunan sem upphaflega kvartaði yfir slíkum ,,dónaskap” í bók ætluðum 5 til 12 ára. Það sem gerði blessaða konuna þetta reiða var að ekki var varað við að bókin innihéldi nekt á forsíðu ,,til að foreldrar gætu tekið upplýsta ákvörðunum hvort barn þeirra mætti skoða hana.”

Æsingurinn dreifði sér út um Bandaríkin og var aumingja Valli á lista yfir 100 mest bönnuð bækur landsins frá 1990 til ársins 2000.

Í öllum útgáfum sem gefnar hafa verið út af viðkomandi bók síðan uppnámið var er konan í bíkini topp.

En það átti ekki af Valla blessuðum af ganga og jólabók um hann var bönnuð í fangelsum í Texas árið 2007 . Þó máttu fangar fá bækur á við Mein Kampf eftir Adolf Hitler svo og bækur eftir æðsta yfirmann Ku Klux Klan, David Duke, í bókasöfnum fangelsa.

Ástæðan var sú að bókinni fylgdu límmiðar.

Typpi eða ekki typpi? 

Rotraut Susanne Berner er þýskur teiknar og barnabókahöfundur sem hefur notið mikilli vinsælda i Evrópu til margra ára. Árið 2007 bauð bandarískt bókaforlag henni samning um útgáfu seríu sem fjallar á gamansaman hátt um krakka og hvað þau gera sér til skemmtunar eftir árstíðum.

En fljótlega varð allt hreinlega vitlaust. Fyrst fór forlagið fram á að allar teikningar sem sýndu reykjandi fólk yrðu fjarlægðar. Í dag myndi slíkt teljast eðlilegra en slíkt þótti ekki stórmál á sínum tíma og allra síst í Evrópu.

Muna ekki allir til dæmis eftir pabba Einars Áskells?

Berner féllst á fjarlægja allar reykingar en setti hnefann í borðið þegar hún var beðin um að teikna upp á nýtt mynd sem sýnir börn á listasafni.

Berner hafði teiknað myndina eftir ferð á safn til að hafa hana sem raunverulegasta og því má sjá í málverk af nakinni konu svo og styttu af nöktum manni. Sérstaklega fór í útgáfuna að limur styttunnar sæist og ekki væri hægt að bjóða bandarískum börnum upp á slíka nekt. Á sama tíma var bókin á metsölulistum 13 þjóða, allt frá Færeyjum til Japans.

Berner,  benti þeim forsvarsmönnum bókaútgáfunnar á á að eini limurinn sem sæist væri í hausnum á þeim og gekk á dyr.

Bækur hennar eru enn óútgefnar í Bandaríkjunum.

Orðabók Webster

Það er erfitt að láta sér koma til hugar ólíklegri bók til að vera bönnuð en orðabók sem er með nauðsynlegustu kennslutólum.

En árið 2010 var hin virta MerriamWebster orðabók bönnuð í fjölda skóla í Kaliforníu. Sem mörgum fannst eðlilega stórundarlegt.

Ástæðan? Í tíundu útgáfu orðabókarinnar árið 2010 var í fyrsta skipti skilgreining á ,,oral sex” (munnmökum).

Bannið entist þó ekki nema í rúma viku en þó var sett sú regla að börn þyrftu skriflegt leyfi foreldra til notkunar á bókinni.

Tarsan

Tarsan, konungur skógarins, hefur skemmt bæði börnum og fullorðnum allt frá því fyrsta bókin um kappann var gefin út árið 1912. Bækurnar um apabróðurinn voru þó bannaðar í nokkrum af almenningsbókasöfnum Kaliforníu árið 1929.

Ástæðan? Tarsan og Jane bjuggu saman í skóginum – ógift. Það að erfitt gæti verið að finna prest til að helga sambandið inni i miðjum frumskógi þótti ekki næg ástæða til leyfa Tarsan (og Jane) að vera áfram á hillum bókasafna.

Vefurinn hennar Karlottu

Vefurinn hennar Karlottu kom fyrst út árið 1952 og segir frá (talandi) grís sem bjargað er af (talandi) könguló. Bókin er með dáðustu barnabókum allar tíma en sumir foreldrar í Kansas í Bandaríkjunum voru þó ekki jafn elskir að bókinni og flestir.

Ástæðan? Það væri ,,ónáttúrulegt að láta dýr hafa mannlega eiginleika, á við tal, og því bæði helgispjöll og vanvirðing við drottinn.”

Rauðhetta

Hver gæti trúað Rauðhetta yrði litin illu auga? Skólaumdæmdi nokkur í Kaliforníu bannaði þó útgáfu frá 1987 af af ævintýrinu af Rauðhettu.

Ástæðan? Á forsíðu bókarinnar heldur Rauðhetta á körfu, ætluð ömmunni veiku. En í körfunni sést glitta í vínflösku sem samkvæmt talsmanni skólamál sagði ,,vera í ósamræmi við reglur skóla um fíkniefnaneyslu og skaðsemi hennar. Enn fremur væri með myndinni verið að gefa í skyn að vín gæti læknað veikindi.

Reyndar mótmælti fjöldi fólks banninu, bæði foreldrar og kennarar, en skólayfirvöldum var ekki haggað og er bókin enn bönnuð.

Jakob og risastóra ferskjan

Jakob og risastóra ferskjan, ein af vinsælli barnabókum 20. aldar var bönnuð í Wisconsin.

Ástæðan? Köngulóin á forsíðunni þykir sýna kynferðislega tilburði með því að vera að sleikja á sér varirnar.

Kafteinn Ofurbrók

Bækurnar um Kaftein Ofurbrók eru gríðarlega vinsælar, ekki síst hér á landi. En það eru ekki jafn hrifnir. Í bókunum er sagt frá ævintýrum George og Harold sem skemmta sér við að dáleiða leiðinlegan kennara og breyta honum í Kaftein Ofurbrók. Sem flestum börnum finnst óskaplega fyndið.

En það fannst ekki öllum. Gríðarlegu fjöldi kvartana, alls staðar að úr Bandaríkjunum, hefur borist yfirvöldum vegna ,,ljóts talsmáta, nektar (kafteinninn er á nærjunum), ofbeldis (strákarnir bjargast með að berjast við vont vélmenni) auk þess sem bókin hvetji til óþekktar (strákarnir setja freyðibaðsduft í hljóðfæri skólahljómsveitarinnar).

Aftur á móti hefur verið lítill vilji meðal skólastjórnenda að banna bókina þar sem hún hefur, fremst allra bóka, reynst afar vel við að lestrarkennslu ungra drengja.

Ljósið á háaloftinu

Ljósið á háaloftinu er bók með með kjánalegum og skemmtilegum vísum sem krökkum þóttu afar fyndnar. Hún var einnig bönnuð í Wisconsins vegna vísu sem ber nafnið „How Not to Have to Dry the Dishes“ eða Hvernig má losna við að þurrka diskana” þar sem það ,,virkaði hvetjandi á börn að brjóta matardiska.”

Sem telst vera furðulegt en þó ekkert í samanburði við annan skóla í sama fylki sem bannaði einnig bókina.

Ástæðan? Bókin var sögð hvetja til djöfladýrkunar, sjálfsvíga og mannáts.

Næstum engir, fyrir utan skólastjórn, hafa fundið neitt slíkt í bókinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi kærastan rýfur loksins þögnina um framhjáhaldsorðróminn – „Ég var niðurbrotin“

Fyrrverandi kærastan rýfur loksins þögnina um framhjáhaldsorðróminn – „Ég var niðurbrotin“
Fókus
Fyrir 3 dögum

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?

9 ára stúlka gekk út í myrkrið og sást aldrei aftur – Hvaðan kom dularfulla bókin?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn rifjar upp pínlegt atvik og biður Drífu afsökunar

Þorsteinn rifjar upp pínlegt atvik og biður Drífu afsökunar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Justin Timberlake hafður að háði og spotti: Myndbandið sem varð til þess að aðdáendur vilja að hann fari á eftirlaun

Justin Timberlake hafður að háði og spotti: Myndbandið sem varð til þess að aðdáendur vilja að hann fari á eftirlaun
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“