fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Glowie hafði samband við geranda sinn til að reyna að fá lokun – „Sorry er ekki svar“

Fókus
Föstudaginn 7. janúar 2022 22:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Sara Pétursdóttir, betur þekkt sem Glowie, varð fyrir kynferðisofbeldi árið 2014. Hún opnar sig um þetta í einlægu viðtali við Vikuna þar sem hún lýsir því hvað það tók hana langan tíma að átta sig á því að brotið hafði verið gegn henni og hvernig hún ákvað að hafa samband við geranda sinn til að segja honum hvað hann hafði gert.

Það var í janúar 2014 sem hún og strákur, sem var aðeins eldri en hún, ákváðu að hittast heima hjá henni. Þau höfðu hist einu sinni áður. Þau ætluðu að horfa saman á bíómynd.

„Það er dálítið kaldhæðnislegt að segja frá því að þátturinn Law & OrderSpecial Victims Unit var í gangi í sjónvarpinu þegar hann kom heim til mín, en ég horfði mikið á þá þætti á þessum tíma. Hann byrjaði að snerta mig og ég var bara í þeirri stöðu að ég vissi ekki alveg hvað ég átti að gera, ég var með rosalega lítið sjálfstraust og fannst ég ekki geta sagt nei þótt ég vildi það.“

Glowie segir að margir trúi því að í slíkum aðstæðum bregðist fólk við með því að verja sig, öskra eða berjast. En það er ekki alltaf þannig.

„Þetta er ekki alltaf eins og maður sér í bíómyndunum eða sjónvarpsþáttunum. Þess vegna verður sjálfsásökunin eftir á mikil því maður fer að setja sökina á sjálfan sig í staðinn fyrir að setja sökina á gerandann. Svo gerði hann þetta aftur nokkrum mánuðum seinna.“

Glowie sagði engum frá brotinu fyrr en hún kynntist núverandi kærasta sínum í ágúst árið sem brotið var gegn henni. Þá hafi hún líka áttað sig á því að hún hafði orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Hún rifjar upp að hún hafi óttast að segja foreldrum sínum frá brotinu því hún óttaðist viðbrögð þeirra.

„Því mér fannst ég hafa gert eitthvað rangt. Pældu í því! Mér datt ekki í hug að nefna þetta við þau því ég var svo viss um að þau yrðu reið. Þarna kemur aftur hvernig þolandinn veltir sökinni yfir á sjálfan sig, en ekki gerandann.“

Hún hóf í kjölfarið að vinna úr þessari reynslu með aðstoð sálfræðings en ákvað einnig að senda geranda sínum skilaboð.

„Um leið og maður fattar að þetta var rangt þá verður maður reiður og vill fá einhverja lokun, mig langaði að hann sæi og viðurkenndi að hann hefði gert eitthvað rangt. Ég sendi honum skilaboðin alls ekki í neinni reiði, heldur vildi ég bara skrifa honum og láta hann vita hvað hann hefði gert, það hefði ekki verið rétt og vonandi myndi hann aldrei gera þetta aftur. En hann kom alveg af fjöllum og sagðist ekki hafa séð þetta sem ofbeldi. „Sorry,“ sagði hann. SorrySorry er ekki svar.“

Hún hafði haldið að henni myndi líða betur að koma þessu frá sér, og ræða við gerandann en það varð ekki svo.

„Versta var að ég hélt að mér myndi líða eitthvað betur við að koma þessu frá mér en mér leið bara enn verr og varð eiginlega bara enn þá reiðari. Það tók tíma að vinna úr reiðinni, mér fannst mjög óréttlátt að ég væri að díla við alla þessa erfiðleika og eftirköst eftir þetta ofbeldi á meðan hann héldi bara áfram með sitt líf án þess að gera sér neina grein fyrir afleiðingum gjörða sinna.“

Hún sé enn að vinna úr þessu í dag og telur að þetta muni örugglega fylgja henni alla tíð. Sú vinna sem hún hefur verið í hefur þó skilað henni því í dag að hún er búin að finna sjálfa sig aftur hægt og rólega og finnst hún aftur geta verið hún sjálf og passar að virða mörk sín.

Í viðtalinu við Vikuna fjallar hún einnig um hvað áhrif það hafði á hana í æsku að vera með ADHD og kvíðan sem hún fann fyrir, en hún greindist ekki með ADHD fyrr en seint og síðar meir. Hún fjallar einnig um söngferilinn og plötuna sem hún er nú að vinna að með hennar eigin lögum og textum sem kemur út í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“