YouTube-stjarnan Tom Scott er með tæplega fimm milljónir fylgjenda á miðlinum. Hann er einnig mikill Íslandsvinur og hefur birt nokkur myndbönd um landið. Eins og þegar hann reyndi að taka myndband af eldgosinu og það gekk hræðilega.
Árið 2012 spáði Tom fyrir framtíðinni, réttara sagt spáði hann því hvernig tæknin myndi þróast tíu ár fram í tímann. Nú er sá tími liðinn og fer hann yfir spá sína, hverju hann náði rétt og hverju ekki. Hann spáir einnig fyrir 2032.