fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Gerður selur kynlífstæki fyrir meira en milljón á hverjum degi – „Þarna kom þetta augnablik“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 11. janúar 2021 12:18

Skjáskot úr þættinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush.is, er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. Í hlaðvarpinu spjalla Gerður og Sölvi meðal annars um menntakerfið en hún hefur afar sterkar skoðanir á því.

„Ég held ég hafi verið hrædd við það sem allir eru hræddir við, sem er að gera mistök og bregðast fólkinu í kringum mig. Ég fór í gegnum skólakerfið með þá tilfinningu að ég væri aldrei nógu góð. Ég átti erfitt með nám og kerfið er þannig að þér eru gefnar einkunnir og þú ert metin út frá því og ég var alltaf að valda sjálfri mér vonbrigðum,“ segir Gerður í hlaðvarpinu.

Gerður segist hafa alltaf verið í C bekknum sem var, að hennar sögn, fyrir tossana. „Það að skipta krökkum upp með þessum hætti eftir árangri í námi er eiginlega ofbeldi. Þetta eru viðkvæmustu árin. Geturðu ímyndað þér hvað það gerir fyrir sjálfstraust unglings sem er í mótun að honum sé sagt að hann sé ekki nógu góður og eigi að vera í C bekk? Niðurlægingin sem fylgir því að segja vinkonum sínum sem allar eru á leið í A bekk að maður verði ekki með þeim í bekk árið eftir af því að maður sé svo lélegur námsmaður.“

„Ég velti núna meira en milljón á dag“

Í hlaðvarpinu talar Gerður líka um reksturinn á kynlífstækjaversluninni. Hún segist vera stolt af afrekum sínum og man vel daginn sem hún fann að alvara var komin í reksturinn. „Ég hef svo oft hugsað til baka og ég man daginn sem ég seldi fyrir fyrstu milljónina mína. Ég man hvað mér fannst það magnað að selja fyrir meira en eina milljón á einum degi og ég hugsaði með mér að ég væri búin að ná toppnum,“ segir hún.

„Þetta var fyrir nokkrum árum síðan og ég var í geðshræringarkasti yfir þessu öllu saman. En þarna var ég líka bara ein með krúttlegan lítinn rekstur, þannig að þó að ég velti núna meira en milljón á dag alla daga ársins er það líka vegna þess að ég þarf það. Núna er ég með 15-16 starfsmenn plús verktaka, auglýsingastofur, bókara og annað. Þannig að í dag er þessi upphæð í sölu beinlínis vegna þess að ég þarf þess til að halda þessarri starfsemi gangandi á góðan hátt.”

„Það gerðist svo hratt að ég eiginlega trúði því ekki”

Þegar Gerður var tiltölulega nýbyrjuð með Blush var hún rekin úr hinni vinnunni sinni. „Sá sem rak mig sagði mér að ég yrði að velja og þetta væri bara of mikið að ég væri í hvoru tveggja á sama tíma. Ég var líka einstæð móðir og sé núna að þetta var bara hárrétt og ég verð alltaf ævinlega þakklát þessum einstaklingi sem rak mig,“ segir hún.

„Þarna kom þetta augnablik þar sem það var annað hvort að hrökkva eða stökkva. Þarna var þetta ekki orðið nógu stórt til að ég gæti lifað á þessu, en ég hafði svo mikla trú á hugmyndinni, þó að ég hafi ekki haft jafn mikla trú á sjálfri mér. Það var stanslaus rödd í hausnum á mér sem sagði við mig að ég væri ekki með menntun í þetta, að ég væri of ung, hver ég þættist eiginlega vera að ætla að fara að byrja með fyrirtæki. En ég hafði það mikla trú á hugmyndinni að það hjálpaði mér að halda þessu áfram. Svo þegar ég fór að vinna í að trúa meira á mig líka og gera markvissa hluti til að laga það, þá fór allt að blómstra og það gerðist svo hratt að ég eiginlega trúði því ekki.”

Hér fyrir neðan má horfa á hlaðvarpið í heild sinni:

https://www.youtube.com/watch?v=G6G9CVLXVmg&t=1511s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta