Aktívistahópurinn Öfgar ætlar í helgarfrí. Það er búið að vera mikið að gera hjá hópnum undanfarnar vikur og mikið álag og áreiti á meðlimi.
Það er óhætt að segja að meðlimir Öfga hafa verið á milli tannanna á landsmönnum undanfarið. Þær eru róttækar og berjast gegn nauðgunarmenningu og feðraveldinu.
Sjá einnig: Tuttugu nafnlausar sögur birtar um meinta ofbeldishegðun Ingó Veðurguðs – Ingó neitar sök
Hópurinn olli talsverðum usla þegar hann birti nafnlausar frásagnir kvenna og stúlkna af áreitni og ofbeldi tónlistarmanns. Þær hafa einnig látið hátt í sér heyra varðandi mál landsliðsmannsin Kolbeins Sigþórssonar og stjórn KSÍ. Þær boðuðu til mótmæla í síðustu viku fyrir landsleik karlalandsliðsins í knattspyrnu og samstöðufundar á miðvikudaginn síðastliðinn ásamt forvarahópnum Bleika fílnum.
Það sem okkur þykir vænt um ykkur 💛 Takk fyrir stuðninginn, samstöðuna, aktívismann og ykkur 💛 pic.twitter.com/dzIaEvvqx7
— Öfgar (@ofgarofgar) September 8, 2021
Sjá einnig: Öfgar skora á Áslaugu að reka Helga – „Þetta er ekki afmarkað tilfelli“
Eins og áður segir hópurinn látið til sín taka í mörgum málum og því hefur álagið að þeirra sögn verið gríðarlegt.
„Við í Öfgum ætlum að taka okkur helgarfrí eftir sturlað álag síðustu vikur. Við munum því svara skilaboðum sjaldnar en vanalega á miðlunum okkar og ekki hrærast í stórum verkefnum. Þið getið samt alltaf sent á okkur! Verðum virkar á TikTok – endilega fylgist með þar,“ skrifar stjórn hópsins á Twitter-síðu Öfga.
Stjórn Öfga skipa Helga Benediktsdóttir, Hulda Hrund Sigmundsdóttir, Ninna Karla Katrínardóttir, Ólöf Tara Harðardóttir og Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir.
Svona ca lítum við út sem erum að reyna að halda utan um allt KSÍ málið. Þetta bara stooooppar ekki 😬@ofgarofgar @johanna_yr @HannaBVilhj @torii_96 pic.twitter.com/gqcotNPRUk
— Tanja Ísfjörð (@tanjaisfjord) September 9, 2021
Hér getur þú fylgst með Öfgum á TikTok.
@ofgarofgarÞetta útskýrir sig sjálft. ##íslenskt ##íslensktiktok♬ Whistle stop and move by wuki – wüki