fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Öfgar skora á Áslaugu að reka Helga – „Þetta er ekki afmarkað tilfelli“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 7. september 2021 11:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðgerðarhópurinn Öfgar skorar á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra,  að taka afstöðu með þolendum og byggja upp þolendavænna réttarkerfi. Slíkt sé ekki hægt á meðan menn eins og Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, séu starfandi innan kerfisins.

Í ákalli til ráðherra segja Öfgar að í umræðunni um málefni KSÍ undanfarið hafi menn innan raða dómskerfisins sumir ítrekað tekið afstöðu gegn þolendum.

Fyrst nefna Öfgar Sigurð G. Guðjónsson, lögmann, sem birti nýlega á Facebook brot úr lögregluskýrslum í máli Þórhildar Gyðu Arnardóttur og Jóhönnu Helgu Jensdóttur gegn knattspyrnumanninum Kolbeini Sigþórssyni.

„Fyrst ber að nefna Sigurð Guðna Guðjónsson. Sigurður er ekki bara hæstaréttarlögmaður heldur gegnir hann einnig starfi forseta dómstóla KSÍ þar sem hann starfar við hlið Harðar Felix Harðarsonar sem er lögfræðingur Kolbeins Sigþórssonar. Í gær birti hann opna stöðufærslu á Facebook þar sem hann tekur skýra afstöðu gegn þolanda og dregur upp gamlar Twitter færslur frá henni sem eru málinu óviðkomandi. Einnig birtir hann myndir af gögnum sem eiga að vera læst í málaskrá.

Við spyrjum því: Hvaðan fékk hann þessi gögn og varðar það ekki við lög að birta þau opinberlega?“

Öfgar benda á að margir hafi „líkað við“ færsluna hans Sigurðar, en það sem sé athyglisvert við það eru hversu margir starfsmenn dómsmálakerfisins séu í þeim hóp. Meðal annars megi þar finna Helga Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknara og fjölmarga landsþekkta lögmenn.

„Þarna á meðal má sjá Helga Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknara. Þetta er ekki afmarkað tilfelli í nethegðun Helga Magnúsar því hann hefur ítrekað, í gegnum árin, sýnt fram á kvenfyrirlitningu, innflytjendaandúð og óþolendavæna afstöðu með netspori sínu.“

Meðal annars hafði Helgi Magnús „líkað við“ athugasemd þar sem Þórhildur Gyða og Stígamót eru sökuð um að hafa kúgað fé úr Kolbeini Sigþórssyni.  Helgi hafi einnig „líkað við“ færslu þar sem frétt af miðlinum frettin.is var deilt sem fjallaði um gamla twitterfærslu Þórhildar Gyðu og sú sett í samhengi við aðkomu hennar að KSÍ-málinu.

„Þarna sést hversu skýrt vararíkissaksóknari hlýtur að teljast vanhæfur til að sinna starfi sínu. Hann tekur beina afstöðu gegn þolanda í póstum þar sem vegið er að æru hennar og brotið er á hennar persónuvernd. Þegar hann hefur „líkað“ við þrjár færslur sem allar hafa sama tilganginn, að niðurlægja, þolendaskamma og draga undan trúverðugleika þolanda. Hér er því ekki hægt að sjá  stuðning við tjáningarfrelsi, líkt og Helgi bar fyrir sig, heldur skýra afstöðu gegn þolanda.“

Öfgar segja að miðað við skoðanir Helga Magnúsar sem að ofan greinir sé ekki furða að þolendur hiki við að stíga fram, kæra eða fara með mál sín í gegnum dómstóla.

„Miðað við skoðanir þessara manna sem nefndir hafa verið í yfirlýsingu okkar er alls ekki skrýtið að þolendur veigri sér við að stíga fram, kæra eða fara með mál sín í gegnum dómstóla. Ef þetta er fólkið sem á að hjálpa okkur í dómskerfinu, hverjum eiga þá þolendur að treysta? Öfgar skora á þig, Áslaug Arna, að skoða þessi mál ofan í kjölinn og taka skýra afstöðu með þolendum. Við biðjum þig að taka skrefið við að byggja þolendavænna réttarkerfi. Slíkt verður ekki gert með aðila eins og Helga Magnús sem vararíkissaksóknara.
Boltinn er hjá þér, Áslaug.“

Hér má lesa ákallið í heild sinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu