Þó svo að samfélagsmiðillinn TikTok sé tiltölulega nýr þá er hann líklegast vinsælasti miðillinn í dag, að minnsta kosti hjá yngri kynslóðinni. Það er auðvelt að festast á forritinu og verða margir háðir.
Aðilarnir sem eru frægir vegna velgengni á TikTok eru verulega margir og hafa sumir nýtt sér þá frægð sína til að hasla sér völl á öðrum vettvangi.
Á dögunum bárust fregnir af því að Anthony Barajas hafi látið lífið í skotárás en hann var afar vinsæll á forritinu. Hann var með yfir milljón fylgjendur og var aðeins 19 ára gamall þegar árásin fór fram. Árásarmaðurinn þekkti hann ekki og var maður að nafni Joseph Jimenez seinna handtekinn vegna gruns um að hann hafi framið morðið.
Anthony er alls ekki einsdæmi um TikTok-stjörnu sem lætur lífið og eru margar þeirra jafn eða svipað ungar og hann.
Timbo the Redneck
Timbo the Redneck var afar vinsæll á TikTok og var með yfir 200 þúsund fylgjendur. Hann lést þegar hann var að taka upp myndband fyrir síðuna sína. Hann var að skransa í hringi á pallbílnum sínum og flaug út um gluggann. Bíllinn datt ofan á hann og kærastan hans horfði á allt gerast.
Ethan is Supreme
Ethan Peters eða Ethan is Supreme lést í september árið 2020 þegar hann var aðeins 17 ára gamall. Hann var mjög ungur þegar hann varð vinsæll á forritinu en hann gerði myndbönd um snyrtivörur og þótti mjög skemmtilegur. Hann byrjaði að nota eiturlyf þar sem hann upplifði svo mikla pressu á sér frá unga aldri og talið er að hann hafi eiturlyfin hafi dregið hann til dauða.
Swavy
Matima Miller eða Swavy eins og hann var kallaður var afar vinsæll dansari á TikTok. Hann var með yfir tvær milljónir fylgjenda þegar hann var skotinn til bana í síðasta mánuði. Hann var aðeins 19 ára gamall en lítið er vitað um morðið á honum. Lögreglurannsókn er enn í fullum gangi og fjölskylda hans getur ekki tjáð sig um hana.