fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Enn fjölgar fórnarlömbunum: Enginn áhrifavaldur virðist öruggur

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 13. júlí 2021 11:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær fjallaði DV um íslenska áhrifavalda sem eru að verða fyrir barðinu á óprúttnum aðila sem hakkar sig inn á Instagram-reikninga þeirra. Nú virðist þessi hópur áhrifavalda fara stækkandi, en Sunneva Einarsdóttir, Patrekur Jamie, Binni Glee, Bassi Maraj, Ástrós Traustadóttir, og DJ Dóra Júlía hafa einnig verið hökkuð. Vísir greinir frá þessu.

Í samtali við DV í gær sagðist Kristín Pétursdóttir, sem var eitt fyrsta skotmark hakkarans, vera í rusli yfir gangi mála, enda skipta Instagram-reikningar miklu máli fyrir áhrifavalda.

„Það er mjög óþægilegt að einhver sé með hendurnar í mínu persónulega lífi,“ sagði hún og benti á að á reikningi hennar megi finna mikilvægar minningar, líkt og ljósmyndir eða skilaboð og samskipti. Þær gætu nú verið glataðar.

Sjá einnig: Kristín Péturs vaknaði við ófagra sjón

Í kjölfar Kristínar bættust í hópinn Birgitta Líf Björnsdóttir, Sigurbjörg Birta Pétursdóttir og Kristín Amalía Sigurþórsdóttir.

Sjá einnig: Birgitta Líf, Sigurbjörg og Kristín lentu líka illa í því

Nú vinna áhrifavaldarnir að því að ná aftur tökum á reikningum sínum. Svo virðist sem enginn áhrifavaldur sé öruggur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“