fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fókus

Klara gerði plötu með heimsfrægum söngvara – „Skrýtið að hafa aldrei fengið að gefa hana út“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 21. janúar 2021 11:27

Klara Elias. Mynd/Instagram @klaraelias

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klara Elias söngkona og lagahöfundur er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Klara, sem varð þjóðþekkt fyrir tvítugt sem söngkona í hljómsveitinni Nylon hefur búið í Los Angeles um árabil, en segir stemmninguna þar hafa farið að súrna verulega á árinu 2020. Bæði út af Covid faraldrinum, miklum óeirðum og sundrung í bandarísku samfélagi. Það varð til þess að hún ákvað að koma heim í haust.

„Þetta hljómar kannski ekki stórt þegar maður er að lýsa því, en þegar þú ert svona langt í burtu og veist ekkert hvernig hlutirnir eru að fara að þróast fær maður heimþrá. Ég upplifði stöðuna á tímabili í Los Angeles eins og stríðsástand og ofan á það bættist að maður hugsaði hvað maður ætti að gera ef einhver í fjölskyldunni myndi veikjast illa. Ofan á það var alltaf verið að fella niður flug og í talsverðan tíma vissi maður ekkert hvort maður kæmist heim. Maður upplifði sig fastan og þetta var bara mjög skrýtið ástand. Á einhvern hátt upplifir maður ástandið þarna stundum eins og það sé ekki langt í borgarastyrjöld. Rosaleg „pólarísering“ og miklar óeirðir og bara tvær þjóðir í einu landi. Þessar óeirðir síðasta vor í Bandaríkjunum voru rosalegar, það voru vopnaðir lögreglumenn á hverju götuhorni og allar rúður brotnar í öllum búðum og enginn á götunum. Annað hvort af því þú mátt ekki fara úr húsi út af covid, eða af því að það eru svo miklar óeirðir. Við búum í hjarta Hollywood og þar fann maður rosalega fyrir þessu. En það er búið að vera á bakvið eyrað hjá mér í talsverðan tíma að koma heim og það hefur örugglega spilað inn í líka. Einhver partur af mér er búinn að vera tilbúinn í breytingar í talsverðan tíma,“ segir hún.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Klara Elias (@klaraelias)

Heil plata ofan í skúffu

Eftir að hafa verið með líf sitt nánast í raunveruleikaþætti fyrir framan alþjóð á Íslandi, fór hljómsveitin Nylon í víking og gerði frábæra hluti í Bretlandi. Eftir það lá leiðin sem fyrr segir til borg englanna í Los Angeles, þar sem Klara hefur verið síðasta áratuginn. Þær Klara, Alma og Steinunn gerðu stóran plötusamning og gerðu plötu sem mikið hafði verið lagt í þegar ákveðið var að setja hana á bið og á endanum ofan í skúffu.

„Það var búið að dæla í okkur peningum, en svo er bara eitthvað ársfjórðungsuppgjör hjá plötufyrirtækinu og peningurinn búinn og ákveðið að setja hann í aðra listamenn. Það var heil plata tilbúin sem fór ofan í skúffu og smáskífurnar voru mjög flott lög sem Bruno Mars og teymið hans sömdu með okkur. Þannig að það er ofan í skúffu plata sem við unnum með Bruno Mars og auðvitað er það skrýtið að hafa aldrei fengið að gefa hana út. En rétturinn er allur hjá plötufyrirtækinu,“ segir hún.

Klara segir að á tímabili hafi þær vinkonurnar verið orðnar skilgreiningin á fátækum listamönnum, þegar staðan er þannig að þú veist í raun ekki hvort þú getur borgað reikningana í lok mánaðar.

„Við bjuggum saman þrjár í eins herbergis íbúð, en það skorti aldrei ástríðuna og okkur leið alltaf mjög vel saman í litlu íbúðinni okkar. En við sóttum okkur öll þau „gigg“ sem voru í boði og gerðum allt til að lifa af listinni. Ég var oft að auglýsa á „Craigslist“ og sá einu sinni auglýsingu þar frá Armenskri poppstjörnu sem var að leita að söngkonu til að syngja með sér. Þetta var mjög vel borgað og ég hafði samband og fékk strax svar og fór svo og söng með honum í stúdíói. Hann á armensku og ég á ensku. Mjög lélega þýddan enskan texta. En þetta gigg borgaði leiguna þann mánuðinn fyrir okkur allar. Svo í kjölfarið sló þetta svo í gegn að ég var orðin fræg í Armeníu og söng í mjög mörgum brúðkaupum og veislum í samfélagi Armena í Los Angeles eftir þetta. Hann vildi reyndar aldrei syngja, heldur alltaf „mæma“, þannig að við komum oft fram saman og mæmuðum fyrir mannskapinn,“ segir hún.

Í þættinum ræða Sölvi og Klara um Nylon ferðalagið, ástríðuna fyrir tónlistinni, stöðuna í Bandaríkjunum og margt fleira.

Þátinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=r5CXBaKB0QE&t=122s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum

Segir að kærastinn sinn sé enginn hommi þó hann sé sífellt að sofa hjá öðrum karlmönnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi

Ella setti kennarastarfið á hilluna – Þénar allt að 12 milljónir árlega í óvenjulegu starfi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur

Hætti skyndilega þátttöku í The White Lotus – Ástæðan var þessi ágreiningur
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun
Fókus
Fyrir 1 viku

Dauðsér eftir því að hafa ekki tilkynnt um brot Skeggja – „Ég hefði átt að koma þessum drengjum til hjálpar“

Dauðsér eftir því að hafa ekki tilkynnt um brot Skeggja – „Ég hefði átt að koma þessum drengjum til hjálpar“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“

Ólafur Egill er aðstandandi einstaklings með fíknivanda – „Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta“