fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fókus

Nítján ára íslensk kona græddi 720 þúsund krónur á þremur vikum á OnlyFans

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 7. ágúst 2020 10:55

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrar íslenskar konur eru að gera það gott á OnlyFans, síðu sem gerir notendum kleift að selja efni sitt til áskrifenda gegn mánaðarlegu gjaldi. Nektarmyndir eru vinsælastar en einnig er mikið um áhrifavalda og aðra einstaklinga sem selja djarfar myndir og myndbönd án þess að sýna nekt. Aðdáendur geta einnig sent notendum skilaboð og lagt fram beiðni um myndefni gegn gjaldi. Það er hægt að græða á tá og fingri á miðlinum eins og ein íslensk konar segir frá í viðtali í nýjasta tölublaði DV.

„Ég byrjaði ekki að þéna meira en 800 þúsund krónur á mánuði fyrr en ég setti allan fókus á að gera vel,“ segir konan sem kýs að koma fram nafnlaus.

Það er ekki vitað um marga Íslendinga á miðlinum en það virðist sem svo að ungar, íslenskar konur séu að ryðja sér til rúms hægt og rólega. Nítján ára íslensk kona greinir frá því á samfélagsmiðlinum TikTok að hún hafi grætt rúmlega 720 þúsund krónur á þremur vikum á OnlyFans. „Er hægt að græða á OnlyFans án þess að sýna nekt? „Já!“ segir konan í myndbandinu og sýnir tölfræði yfir tekjur sínar á miðlinum. Á fyrstu vikunni græddi hún rúmlega 430 þúsund krónur.

„Hér fáið þið að sjá efni sem ég deili ekki á Instagram. Ég deili nærfata/bikinímyndum, æfingamyndböndum og hversdagslegum myndum,“ kemur fram á síðu hennar. Hún segist ekki selja nektarmyndir af sér, sama hversu hátt boð hún fær.

Þú getur lesið greinina í heild sinni í nýjasta tölublaði DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“