Birgir Örn Guðjónsson, lögreglumaður fékk sérstaka beiðni um daginn en lét þó slag standa.
Útkoman var þetta myndband þar sem viðbragðsaðilar og lögreglumenn út um allan heim syngja lagið „He’s Got the Whole World in His Hands“ til að minna heiminn á að saman komumst við í gegnum þennan faraldur.
Birgir deilir útkomunni á Facebook-síðu sinni :
„Hélt að vísu að þetta yrði klippt saman svona setningu fyrir setningu en……
Gaman að því að fá smá jákvæða kveðju og uppörvun frá fólki sem stendur vaktina í lögreglunni víðsvegar í heiminum.
Við erum öll í þessu saman. Við komumst í gegnum þetta saman. Við erum öll almannavarnir“
Myndbandið má sjá í færslu Birgis hér að neðan. Fyrir þá ákaflega forvitnu þá má finna framlag Birgis þegar 3 mínútur og 36 sekúndur eru liðnar af myndbandinu