fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Landsmenn bjóða í síðustu klippinguna áður en strangari reglur taka gildi

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 23. mars 2020 14:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á miðnætti í kvöld munu strangari reglur taka gildi um samkomubann. Frá og með miðnætti munu allar samkomur þar sem tuttugu manns eða fleiri koma saman vera bannaðar. Einnig loka sundlaugar, líkamsræktarstöðvar, skemmtistaðir, spilakassar og söfn. Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks verður einnig óheimil. Þar undir falla meðal annars hárgreiðslustofur.

Í tilefni þess ætlar TeamX í samstarfi við Kompaníið og Daða Hendricusson að bjóða upp síðustu klippinguna.

Landsmenn geta nú boðið í síðustu klippinguna og mun allur ágóði renna til söfnunarátaksins Stöndum með Landspítala.

„Þar sem álagið fer hratt vaxandi og þrekvirki eru unnin á hverjum degi,“ kemur fram á vefsíðu uppboðsins.

DV heyrði í Daða sem segir að með þessu séu þau að vekja athygli á samkomubanninu og átakinu til styrktar Landspítalans.

„Það sem við erum að gera er að reyna að fá einhvern pening inn í Landspítalann til að styrkja landspítalann í baráttunni gegn COVID-19.  Mér fannst þetta frábært tækifæri og ég vona að fólk bjóði í þetta og styrki gott málefni, og það fær þá eitthvað annað í staðinn,“ segir Daði.

„Ég er tilbúin að taka á móti öllum þeim kröfum sem viðkomandi vill þannig séð, ef hann býður vel og er tilbúinn að styrkja Landspítalann.

Uppboðið er nú komið í 50 þúsund krónur þegar greinin er skrifuð.

Sá sem á hæsta boð klukkan fjögur í dag vinnur síðustu klippinguna. Hér getur þú skoðað uppboðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu