Óvænt atvik, hlaðið manngæsku, varð til þess að Guðrún Brynjólfsdóttir hágrét í dag og hreinlega gat ekki hætt að gráta.
Hún skýrir frá þessu í færslu á Facebook sem hefur vakið mikla athygli. Þar greinir hún frá því hvernig hún varð óvænt aðnjótandi góðmennsku ókunnugrar konu sem ákvað að sýna sannan jólaanda:
„Hvað hef ég gert til að eiga þetta skilið?“
Ég sat úti í bíl seinnipartinn í dag eftir eina búðarferðina í Bónus, hágrátandi og gat ekki hætt.Ástæðan var ekki sú að ég væri sorgmædd eða óhress, heldur ég hafði upplifað góðverk sem kom heldur betur flatt upp á mig.Ég var að versla og það var ung kona á undan mér.Hún var ekki að kaupa neina matvöru, heldur gjafabréf og bauð mér að vera á undan sér á meðan hún beið eftir þjónustu.Ég þáði það, og renndi vörunum mínum í gegn, nema ég gleymi smotterý og fæ að hlaupa inn í búð að sækja það.Þegar ég kem til baka er verið að afgreiða ungu konuna og vörurnar mínar biðu skannaðar við endann á afgreiðsluborðinu fyrir utan það sem ég hafði gleymt inni í búð sem átti eftir að skanna.Ég beið því bara og bað svo unga manninn að bæta þessu við það sem ég átti eftir að borga.„Nei, það er búið að borga matinn – konan á undan þér ákvað að borga þetta líka“HA!Ó jeminn, hún hefur óvart verið rukkuð fyrir minn part– segi ég í geðshræringu og fannst það skelfilegt að ókunnug kona hefði verið rukkuð fyrir matinn minn.„Nei, hún sagði að hún ætlaði að borga þetta“ segir ungi drengurinn á kassanum ..Ég hleyp því út og leita að konunni, því ég vildi millifæra á hana ..Fann hana ekki í myrkrinu..Miður mín ..En svo kemur hún keyrandi – ég veifa henni og bið hana að stoppa – segi við hana „heyrðu elskuleg, ég held að þú hafir verið rukkuð fyrir matinn minn, ég vill fá að borga þér“– Nei alls ekki, segir hún.Ég ætlaði að borga þetta.„Nú? segi ég stamandi af undrun, afhverju“?
– Bara afþví barasegir hún brosandi og segir svo bara Gleðileg jól.
https://www.facebook.com/gudrunonline/posts/10158696040595340