Í stafrænum nútíma þar sem fjöldi vondra frétta ber daglega fyrir augu verður æ mikilvægara að vega upp á móti leiðindunum og hörmungunum. Fátt færir bros yfir andlitið jafnauðveldlega og krúttlegar kisur, loðnir kettlingar, naktir kettir og jafnvel sérlega óaðlaðandi kettir líkt og kötturinn Lois á Instagram.
https://www.instagram.com/p/B-A7k_cp5iE/?utm_source=ig_web_copy_link
Frá upphafi internetsins hafa kettir verið hálfgerðir einráðir hvað varðar almenn elskulegheit. Fólk virðist hreinlega ekki fá nóg af þessum loðnu kvikindum. En kettir mega fara að vara sig því internetkrúnu þeirra er ógnað af fleiri dýrategundum sem fá jafnvel önugasta fólk til þess að krumpast að innan af krúttleika.
Nú spyrja einhverjir sig: „hvað getur eiginlega verið sætara en köttur?“ Þvottabirnir voru sterkir mótherjar lengi vel, sama gildir um geitur og otra. En svo komu endurnar. Þær hafa ekki enn náð yfirhöndinni, en maður minn. Það getur enginn sagt mér að þessar sætu, loðnu endur bræði ekki köldustu hjörtu.
https://www.instagram.com/p/B-zrBNVgpws/?utm_source=ig_web_copy_link
https://www.instagram.com/p/B-cwQd2gK3L/?utm_source=ig_web_copy_link
https://www.instagram.com/p/B_7Eg9iAmts/?utm_source=ig_web_copy_link
https://www.instagram.com/p/B_IobVrghVK/?utm_source=ig_web_copy_link
https://www.instagram.com/p/B8HjqMNg0Am/?utm_source=ig_web_copy_link