fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ágústa Ýr ögrar staðalímyndum: Var sett í megrun fimm ára gömul

Auður Ösp
Mánudaginn 4. maí 2020 20:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég laðast að því sem öðrum finnst vera afbrigðilegt eða skrítið eða fráhrindandi,“ segir fyrirsætan og listakonan Ágústa Ýr en það er ekki ofsögum sagt að hún fer sínar eigin leiðir.  Ágústa Ýr býr í London og heldur úti Instagram-síðunni @IceIceBabySpice. Hún deilir list sinni og „memes“ á miðlinum með tæplega tíu þúsund fylgjendum sínum.

DV fjallaði um Ágústu Ýr í janúar síðastliðnum en þar kom fram að hún flutti frá Íslandi til Miami þegar hún var aðeins tveggja ára.

„Foreldrar mínir vildu að við systkinin myndum tala íslensku þannig það var regla heima að tala aðeins íslensku við þau heima. Þannig þetta var lítið íslenskt heimili í miðju Miami/Dade. Þegar ég var yngri vildi ég verða poppstjarna, dansari og fyrirsæta – ég er tvennt af þessu á einn eða annan hátt,“ sagði Ágústa en hún lýsir sér sem listakonu, leikstjóra, þrívíddar kunnáttukonu (e. 3D connoisseur) og meme drottningu. Þá sagði hún  fegurð og líkamann  drífa hana áfram í persónulegum verkefnum hennar.  Undanfarin misseri hefur hún unnið með þekktum listamönnum og hönnuðum á borð við Nick Knight,  Ellie Grace Cumming, Yang Li og Jeremy Scott.

Í nýlegu viðtali við Dazed Digital kemur fram að Ágústa sé í dag á skrá hjá umboðsskrifstofu í New York. Hún segist vera alin upp á „dæmigerðu íslensku heimili“ í Miami borg í Flórda.

„Ég var fimm ára þegar foreldrar mínir byrjuðu að setja mig í megrun og líkamsrækt,“ segir Ágústa í viðtalinu.

Ljósmynd/Dazed

Hún segir foreldra hafa mjög fastmótaðar, hefðbundar hugmyndir um hvað sé fallegt og líklega hafi það haft áhrif á listsköpun hennar. Verkin hennar séu í andstöðu við þetta hefðbunda viðhorf.  Ágústa Ýr vinnur einkum með þrívídd í listsköpun sinni og ögrar staðalímyndum um fegurð, kynjahlutverk og líkamsímynd.

 

 

View this post on Instagram

 

The dust bunnies in your lingerie drawer during quarantine 🧚🏻‍♀️ song @leylabluetoo 💙

A post shared by agusta yr (@iceicebabyspice) on

Hún vill koma með jákvæð skilaboð til þeirra sem telja sig ekki eiga heima í tísku og listageiranum. Þeirra sem passa ekki inn í normið. Hún segir „bransann“ geta verið óvægan.

„Ég vil ná til fólks, sérstaklega ungs fólks, sem líður illa með líkama sinn, eða skammast sín jafnvel fyrir áhugamál sín, og sýna þeim að þau mega taka sér pláss. Það ætti ekki að nota fólk sem fellur ekki inn í normið til að tengja vörumerki við góðmennsku. Til dæmis fólk sem glímir við fötlun eða feitt fólk. Markmiðið ætti að vera að allir gætu notið sín og verið þeir sjálfir.

 

Hér má lesa viðtal Dazed við Ágústu í heild sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum