fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fókus

Kjartan Guðbrandsson: Furðulegasta starfið að leika fáklædda gínu

Íris Hauksdóttir
Laugardaginn 21. september 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kjartan Guðbrandsson starfar sem einkaþjálfari ásamt því að vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks ÍA í fótbolta. Við fengum Kjartan í yfirheyrslu helgarinnar.

Hvar líður þér best?
Þar sem ég er með dóttur mína í hægri hendi og soninn í vinstri, helst í Þórsmörk.

Hvað óttastu mest?
Sjálfan mig.

Hvert er þitt mesta afrek?
Að verða heiðarlegur á gamalsaldri.

Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Ætli það sé ekki að leika fáklædda gínu í búðarglugga við Laugaveginn.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Það er leyndó því það styttist í hana. Ég þarf að bíða aðeins lengur annars verð ég handtekinn við útgáfu.

Hvernig væri bjórinn Kjartan?
IPA bruggaður af besta vini mínum og héti Granít eða Seiður.

Besta ráð sem þú hefur fengið?
Að hlusta á Dodda vin minn.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Mér finnst leiðinlegast að brjóta saman þvottinn.

Besta bíómynd allra tíma?
Old Boy, Park Chan-wook.

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég mætti vera stundvísari, en ég sakna þess að geta ekki sofið út.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Ég segi frá því í bókinni.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Það er bara þannig, ekkert annað í boði.

Hvað getur þú sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta að veita þér?
Gott kaffi og alvöru súkkulaði.

Hvað er á döfinni hjá þér?
Að halda áfram að fylla í eyðurnar í ævisögunni, gefa af mér og taka lífinu ekki of alvarlega.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“

Guðrún og Árni ræða um nekt og svara vinsælli spurningu: „Hvað ef ég fæ bóner?“
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“

Áhrifavaldur tilkynnir eigið andlát rúmum mánuði eftir að frumburðurinn kom í heiminn – „Dauðinn er ógnvekjandi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“

„Það er erfitt að elska einhvern og vera langt í burtu frá honum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman

Katy Perry og Orlando Bloom eru hætt saman
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“

Sunneva var fórnarlamb ástarsvika og tapaði milljónum – „Hann varð partur af mínu lífi mjög hratt“