Hjónin og tónlistarfólkið Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir fögnuðu komu frumburðarins síðasta miðvikudag, en Árný Fjóla segir frá því á Instagram-síðu sinni.
„Áróra Björg fæddist 17.apríl eftir 28 tíma fæðingu. Hér erum við mæðgur, blóðsprengdar, þreyttar og þrútnar en sælar við þessa nýju tilveru,“ skrifar Árný Fjóla við mynd af mæðgunum.
Daði Freyr birtir líka mynd af litlu hnátunni, sem og mynd af fallegu fjölskyldunni – alveg í skýjunum:
Árný Fjóla og Daði gengu í það heilaga seint á síðasta ári, en hafa verið hálfgerð óskabörn þjóðarinnar síðan þau tóku þátt í Söngvakeppninni með lagið Hvað með það? árið 2017. Þau lentu í öðru sæti, lutu í lægra haldið fyrir Svölu Björgvinsdóttur og Paper, en eignuðust gríðarlega marga aðdáendur þrátt fyrir það.
Fókus óskar hjónunum innilega til hamingju með frumburðinn!