Val DV á manni ársins er komið í gang en fyrir stuttu kallaði ritstjórn DV eftir tilnefningum frá lesendum. Það stóð ekki á viðbrögðunum og telja tilnefningarnar nokkur þúsund.
Nú hefur ritstjórn DV tekið saman þá einstaklinga sem fengu flestar tilnefningar og stendur valið á milli átta einstaklinga. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir þá en tekið skal fram að valið stendur yfir í eina viku og lýkur kosningu á hádegi mánudaginn 16. desember.