Ástralski grínistinn Jonathan Duffy trúlofaðist nýverið kærasta sínum Natan J. Etienne. Bauð Natan sínum heittelskaða í laumuferð á Snæfellsnes og fór á skeljarnar. „Ég sagði auðvitað já,“ skrifar Jonathan á Facebook-síðu sína, í sjöunda himni. Jonathan hefur búið á Íslandi um nokkurt skeið og gert gott mót í uppistandi. Þá hefur hann einnig unnið í grafískri hönnun fyrir ýmsa listamenn, þar á meðal fyrir Gretu Salóme og Eurovision-framlag hennar, Raddirnar.