fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Innsýn í líf ríkasta manns í heimi – Svona eyðir hann milljörðunum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Sunnudaginn 24. nóvember 2019 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæknigúrúinn Bill Gates hjá Microsoft endurheimti fyrsta sætið á lista Bloomberg yfir ríkasta fólk heims. Þar með náði hann að henda Jeff Bezos hjá Amazon úr toppsætinu eftir að Microsoft landaði tíu milljarða dollara samningi við Pentagon sem Amazon var einnig á höttunum eftir. Bill Gates var hent niður í þriðja sæti á listanum í júlí síðastliðnum í fyrsta sinn í sjö ár.

Í dag er Bill Gates metinn á 110 milljarða dollara. Ef hann myndi eyða einni milljón dollara á dag þá myndi taka hann 245 ár að verða blankur. Hann og eiginkona hans, Melinda Gates, lifa hins vegar ekkert sérstaklega hátt og eyða brotabroti af auðnum í lúxus. Meirihlutinn af tekjum hjónanna fer í góðgerðarmál. Bill Gates varð nýlega 64 ára en hann var orðinn milljarðamæringur 31 árs og var þá yngsti milljarðamæringur sögunnar. Í dag er hann 25 milljörðum dollara ríkari en hann var fyrir fimm árum og 10,5 milljörðum dollara ríkari en hann var fyrir ári. Við skulum kíkja á hvernig ríkasti maður heims eyðir auðæfunum.

Bill Gates er ríkasti maður heims. Mynd: Getty Images

Einkaþotan

Bill Gates á einkaflugvél af gerðinni Bombardier BD-700 Global Express sem kostar fjörutíu milljónir dollara og tekur nítján farþega í sæti.

Gates getur boðið mörgum með í flugferð.

Búgarðurinn

Bill Gates keypti jörð í Medina í Washington fyrir tvær milljónir dollara árið 1988. Það tók hann sjö ár að reisa búgarðinn Xanadu 2.0 á lóðinni og eyddi hann 63 milljónum dollara í bygginguna. Búgarðurinn er rúmlega sex þúsund fermetrar og er metinn á 125 milljónir dollara í dag. Árið 2017 greiddi hann rúma milljón dollara í fasteignaskatt af eigninni.

Heimilið – Eitt af mörgum.

Tölvur og list

Á búgarðinum eru tölvuskjáir að verðmæti áttatíu þúsund dollara. Þá er hann einnig með sérstök tæki sem metin eru á 150 þúsund dollara sem geta varpað ljósmyndum eða listaverkum á fyrrnefnda skjái með einum smelli. Raunveruleg listaverk hanga einnig á veggnum, til dæmis eftir Winslow Homer sem auðjöfurinn keypti á 36 milljónir dollara árið 1988. Þá er einnig risastórt bókasafn á búgarðinum sem geymir til að mynda sextándu aldar handrit eftir Leonardo da Vinci sem Bill Gates keypti á uppboði árið 1994 á þrjátíu milljónir dollara.

Þetta handrit á Bill Gates.

Sérstakur sandur

Á búgarðinum er einnig trampólínherbergi og sundlaug. Þá lætur Gates flytja sand frá St. Lúsíu í Karíbahafinu til að skreyta umhverfi búgarðsins. Auk bíósals fyrir tuttugu manns, sex eldhúsa og 24 baðherbergja er bílskúr á lóðinni sem hýsir 23 bíla.

Bílasafnari

Gates er mikill bílasafnari en fyrsti bíllinn sem hann keypti eftir að hann auðgaðist var Porsche 911 Supercar. Þann bíl seldi hann og síðar var hann boðinn upp fyrir áttatíu þúsund dollara. Hann á einnig Porsche 959.

Gates er mikill bílasafnari.

Búgarðabrjálæði

Gates á einnig búgarð í Wellington í Flórída. Hann eyddi 27 milljónum dollara í að kaupa ýmis hús á því svæði, þar sem margir vellauðugir knapar búa. Dóttir Gates-hjónanna er góður knapi og keyptu þau búgarðinn til að styðja við ástríðu dóttur sinnar. Gates á einnig búgarðinn Rancho Paseana í Kaliforníu sem hann keypti fyrir átján milljónir dollara. Þá á hann búgarð í Wyoming sem kostaði 8,9 milljónir dollara árið 2009.

Hótelmógúll

Gates hefur fjárfest mikið í hótelum í gegnum félag sitt Cascade. Hann á hlut í Charles-hótelinu í Cambridge í Massachusetts og á næstum því helming í Four Season Holding-hótelkeðjunni. Árið 2013 keypti hann Ritz-Carlton-hótelið í San Francisco í félagi við aðra.

Milljarðar í góðgerðarstarf

Gates elskar að ferðast með fjölskyldunni og hefur verið þekktur fyrir að eyða allt að fimm milljónum dollara í eitt frí. Hann elskar að spila tennis og fara á skíði en einnig að lesa og spila bridds. Hann eyðir hins vegar langmestu fé í góðgerðarmál og voru hann og eiginkona hans nýlega valin gjafmildustu mannvinirnir því þau hafa gefið rúmlega 36 milljarða dollara til góðgerðarmála í gegnum samtök sín, Bill and Melinda Gates Foundation. Þau sóru þess heit árið 2010 að gefa mest að auðæfum sínum til góðgerðarmála og hafa einnig tekið virkan þátt í góðgerðarstarfi í þróunarlöndum. Þau hafa gefið margar milljónir dollara í að styðja við rannsóknir á Alzheimer-sjúkdómnum sem og í verkefni til að berjast gegn malaríu og ebóluvírusnum. Tveir og hálfur milljarður hefur runnið til GAVI Alliance sem eykur aðgengi að bóluefni í þróunarlöndum. Þau hafa einnig barist ötullega við að útrýma næringarskorti í Nígeríu. Þegar þau falla frá heldur þessi gjafmildi áfram því börnin þeirra þrjú munu aðeins erfa tíu milljónir dollara hvert.

Bill og Melinda Gates eru ekki þekkt fyrir að eyða í vitleysu.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fókus
Í gær

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 3 dögum

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“

Grunaði að eiginkonan væri að halda framhjá – „Sannleikurinn var tvöfalt verri“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“