Aðdáendur Friends muna eflaust eftir sjötta þætti níundu seríu, þar sem Freddie Prinze Jr. kom fram í gestahlutverki. Freddie lék hin viðkunnalega Sandy sem ráðin var sem barnfóstra hjá Ross og Rachel, en Ross þótti það fráleit hugmynd að karlmaður væri í slíku starfi.
Það sem fáir vita er að hlutverkið var upphaflega ætlað öðrum frægum leikara.
„Ég átti ekki einu sinni að leika Sandy, upphaflega átti hlutverkið að fara til Tom Hanks, en hann var fastur í tökum annarstaðar og náði ekki að klára í tæka tíð,“ sagði Freddie í viðtali við Entertainment Weekly nú á dögunum.
„Þannig að umboðsmaðurinn minn hringdi í mig og spurði: „Viltu vera í Friends?“ Og ég sagði: „Já, ég skal vera í Friends þætti. Það væri frábært,“ rifar Freddie upp og bætir við að honum hafi þvínæst verið tjáð að hann ætti að mæta í tökur daginn eftir. Hann hafði þar af leiðandi minna en sólarhring til að leggja línurnar á minnið, og það gafst ekki einu tími í samlestur með hinum leikurunum.
Hann ber mótleikara sínum David Schwimmer vel söguna og segir hann hafa lagt sig fram við að skapa afslappað andrúmsloft á tökustaðnum.
„Hann kom til mín inn í búningsherbergið og hann var svo svalur og ástríðufullur og það var svo mikil orka í kringum hann.“