Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, gerði tilraun fyrr í dag til að draga úr viðbrögðum vegna Samherjamálsins með því að vísa til þess að þessir menn ættu börn. Margir hafa bæði gert grín af þessu og gagnrýnt.
Í þessu samhengi er ekki út vegi a að minnast þess að Baldvin Þorsteinsson, sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra Samherja, er stjórnarformaður félagsins. Sagnfræðingurinn síkáti, Stefán Pálsson, gerir grín að þessu á Facebook og rifjar upp eftirminnilegt atvik á göngum Alþingishússins.
„Allir á internetinu eru að misskilja þessa athugasemd Gunnars Braga um að Samherjamenn eigi börn. Þetta er ekki tilraun til að biðja þeim griða heldur lítt dulbúin hótun um að sonur Þorsteins Más muni berja alla sem eru með derring,“ skrifar Stefán.
Atvikið sem hann vísar til má sjá hér en þá veittist Baldvin að að Má Guðmundssyni seðlabankastjóra og sagði orðrétt við hann: „Sýndu smá sómakennd og drullaðu þér burtu.“ Atvikið átti sér stað eftir fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en þar var farið yfir framgöngu Seðlabankans gagnvart Samherja.