fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fókus

Guðmundur Ingi: „Skoskur læknir ráðlagði mér að kíkja á 12 spora fundi. Það er sennilega það gáfulegasta sem ég hef gert í seinni tíð”

Íris Hauksdóttir
Laugardaginn 26. október 2019 15:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Þorvaldsson er sjálfstætt starfandi listamaður og að eigin sögn í stöðugri leit að skemmtilegum áskorunum úti um allan heim. Hann fer um þessar mundir á kostum verkinu HÚH, Best í heimi sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Guðmundur Ingi er í yfirheyrslu helgarinnar.

Hvar líður þér best?
Í skapandi vinnu með skemmtilegu fólki og svo bara í afslöppun með fjölskyldunni úti í náttúrunni.

Hvað óttastu mest?
Voða fátt orðið í rauninni. Svo lengi sem fólkinu mínu líður vel og er heilbrigt óttast ég ekkert. Ég hef trú á mannkyninu og framtíðinni.

Hvert er þitt mesta afrek?
Að rækja grunnskyldur mínar af kostgæfni sem góður eiginmaður og faðir og finna kærleikann í lífinu.

Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Ég fór einu sinni í gangstéttasteypuvinnu. Þá þurfti ég einu sinni að horfa á steypu þorna í átta tíma. Passa að enginn myndi stíga í blauta steypu. Ég hélt að þetta væri vinnustaðargrín allan tímann.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Leitin að tilgangi listarinnar.

Hvernig væri bjórinn Guðmundur Ingi?
Taðgaffall.

Besta ráð sem þú hefur fengið?
Skoskur læknir ráðlagði mér að kíkja á 12 spora fundi. Það er sennilega það gáfulegasta sem ég hef gert í seinni tíð.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Þrif á baðherbergi.

Besta bíómynd allra tíma?
Ekki séns að ég geti nefnt eina. Kvikmyndalistin er stórkostlegt form sem býður upp á endalausa möguleika. Ég verð mjög oft uppnuminn yfir góðum myndum. Nú síðast yfir rússnesku myndinni Elephants Can Play Football.

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég myndi gjarnan þiggja meiri þolinmæði og jafnaðargeð. Af yfirnáttúrulegum myndi ég helst vilja getað flogið.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Ég reyni að taka alltaf áhættu, með allt nema fjölskyldulífið. Listamaður sem tekur ekki áhættu er dauður.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Íslenskir frasar sem snúast um að spyrja um líðan fólks án þess að spyrjandinn hafi nokkurn áhuga á að heyra raunverulegt svar og spyrjandinn svarar jafnvel sjálfur. Ertu ekki bara hress, ha? Jú jú. Sem og fyrirsagnir og frasar sem miða að því að gera fólk óttaslegið og fullt vantrausts í garð annars fólks. Svona týpísk nútíma pólitík sem snýst um að búa til ringulreið og ótta. Frasar sem ala á fordómum í garð þeirra sem minna mega sín í samfélaginu fara líka í taugarnar á mér. Fólk með silfurskeiðar getur ekki með nokkru móti sett sig í spor fólks sem alist hefur upp í hvers kyns birtingarmyndum fátæktar og ofbeldis.

Hvað getur þú sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta að veita þér?
Kaffi, súkkulaði, góðar sósur, blóðugar steikur, skrítin og ögrandi verkefni.

Hvað er á döfinni hjá þér?
Sýningar á HÚH! Best í heimi í Borgarleikhúsinu. Útvarpsþættir um heimilsofbeldi fyrir Útvarpsleikhúsið með RaTaTam. Sýningar á SUSS! verkinu okkar í RaTaTam í nóvember í samstarfi við flestar stofnanir og félagasamtök sem vinna í kringum þennan erfiða málaflokk. Klára plötuna Miðaldra með Tveimur Dónalegum Haustum. Svo er ég í tveimur risaverkefnum erlendis sem er stranglega bannað að tala um. Annars bara að reyna að halda heimilislífinu eðlilegu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum
Fókus
Í gær

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf
Fókus
Fyrir 2 dögum

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sagan á bak við Frank Mills

Sagan á bak við Frank Mills
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prumpulykt að gera út af við hjónaband til 30 ára

Prumpulykt að gera út af við hjónaband til 30 ára