fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Steindi Jr.: „Ég held að fólk verði þakklátt fyrir að fá alvöru djöflasýru“

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 20. október 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það eru örugglega alls konar greiningar í gangi hjá mér sem kæmu í ljós ef ég myndi láta tékka á þeim. Ég er alltaf mjög orkumikill og hef verið þannig síðan í æsku. Ég sé sjálfan mig rosalega mikið í fimm ára dóttur minni. Hún vill alltaf fara í búninga og við erum bæði með leikrit á fullu. Það þarf alltaf að vera eitthvað í gangi,“ segir grínistinn Steinþór Hróar Steindórsson, þekktur af góðum landsmönnum sem Steindi Jr.

Grínistinn og framleiðandinn hefur verið sérlega áberandi upp á síðkastið vegna sjónvarpsþáttanna Góðir landsmenn. Í næstu viku frumsýnir hann svo „gay vampírumyndina“ Þorsta, sem unnin er í samstarfi við áhugamannaleikhópinn X og Hjört Sævar Steinason, en fyrr nefndir þættir hafa sýnt í grófum dráttum frá óvenjulegri tilurð, fjármögnun og sköpun bíómyndarinnar. Steindi er nýr gestur Föstudagsþáttarins Fókuss og segir þar frá svefnlausum dögum framleiðsluferlisins, því sem knýr hann áfram og listinni að slaka á með góðum símahrekk.

Þorsti er fyrsta kvikmyndin sem Steindi framleiðir og jafnframt „fyrsta alvöru íslenska B-myndin“ að hans sögn. Myndin fjallar um Huldu, konu sem er grunuð um að hafa valdið dauða bróður síns og er því til rannsóknar hjá lögreglu. Eftir að hafa verið sleppt úr varðhaldi rekst Hulda rekst á mörg þúsund ára gamla, einmana og samkynhneigða vampíru, sem leikin er af Hirti, sem hjálpar henni að vekja bróður hennar til lífs aftur. Þá magnast farsinn þegar óvinir nálgast úr öllum áttum og þar á meðal óhugnanlegur sértrúarsöfnuður.

Í fimmta gír

Steindi telur þetta vera hreinræktaða stemningsmynd, gerða til að bæta lit í einsleitt úrval í kvikmyndahúsum. „Þegar ég fer í bíó í dag liggur við að það sé stór ákvörðun. Önnur hver mynd í dag er tveir og hálfur tími eða þrír klukkutímar og fylgir því heilmikið skipulag í kringum það. Þorsti er ekki nema 85 mínútur og er ekta svona mynd sem þú getur átt stemningu yfir með félögunum,“ segir Steindi og tekur fram að einfaldar afþreyingarmyndir vanti í íslenska kvikmyndagerð.

Venjuleg íslensk bíómynd kostar heilmikið. Maður skilur að það sé ekki hægt að fá þennan aur til baka með einungis bíóaðsókn. Það þarf að leita í styrki erlendis og þá kemur danskt eða pólst „krú“ í huga. Auðvitað skilur maður þetta, þetta er rosalega dýrt og peningarnir þurfa að skila sér. Mér finnst samt líka vanta kvikmynd sem er hrein skemmtun. Það er ekki verið að eltast við endurgerðir eða sýningarétt eða verðlaun,“ segir hann. „Ég held að fólk verði þakklátt fyrir að fá alvöru djöflasýru. Ég held að hvert einasta barn á Íslandi verði skíthrætt við Hjört eftir að hafa horft á þessa mynd og ann er óhugnanlegur fyrir.“

Steindi segir Góða landsmenn og Þorsta vera eitt verk í hans huga, þótt hvort tveggja séu sjálfstæð verk. Framleiðsluferli kvikmyndarinnar hefur annars vegar verið óvenjulega hratt og hafa Steindi og hans teymi verið í kappi við klukkuna til að skila fullkláruðu verki í kvikmyndahús á tilsettum tíma.

„Þetta varð miklu stærra allt en það átti að verða. Ég er þó ógeðslega ánægður að sú hafi orðið raunin. Ég er búinn að vera í fimmta gír, stanslaust. Þetta er auðvitað bara törn og fer sem betur fer að ljúka, en svo fer ég á heilsuhæli í tvær vikur og tek því rólega þar,“ segir Steindi. „Við urðum að standa við þessa dagsetningu, annars hefði myndin ekki verið sýnd.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“