Alþingi kom saman á ný í gær og var þriðji orkupakkinn enn og aftur til umræðu. Maður fólksins, Bubbi Morthens, segir það sem margir hugsa á Twitter.
Þar segist hann hafa fengið algjört ógeð á umræðu um þriðja orkupakkann en óhætt er að segja að margir séu sammála honum hvað það varðar.
„Ég er orðin sjúkur í líkama mínum útaf af þessari orkupakkinn umræðu fokk, hvað þetta er sikk það eina sem þetta valdasjúka lið ætti að vera gera væri að taka á er hamfarahlýnun jarðar,“ segir Bubbi.
Ég er orðin sjúkur í líkama mínum útaf af þessari orkupakkinn umræðu fokk,hvað þetta er sikk það eina sem þetta valdasjúka lið ætti að vera gera væri að taka á hamfarahlýnun jarðar
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) August 30, 2019