fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Fókus

Eyfi hvíttar tennurnar á Svölu Björgvins

Fókus
Þriðjudaginn 26. mars 2019 13:30

Svala fer í stólinn hjá Eyfa.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Fréttablaðinu í dag birtist keypt umfjöllun um Heilsu og útlit í Kópavogi, en eigandi stofunnar er Sandra Lárusdóttir. Sandra er eiginkona tónlistarmannsins Eyjólfs Kristjánssonar, sem væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Eyjólfur vinnur á stofunni við að hvítta tennur fólks.

„Maðurinn minn, Eyjólfur Kristjánsson, fór út að læra tannhvíttun og við höfum verið að bjóða upp á slíkt með góðum árangri,“ segir Sandra í greininni. Með fylgir mynd af Eyfa að hvítta tennurnar á söngkonunni Svölu Björgvinsdóttur.

Hér má sjá kynninguna.

Í kynningunni kemur einnig fram að Heilsa og útlit bjóði upp á sogæðameðferðir, sem Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, hafi meðal annars nýtt sér fyrir síðasta heimsmeistaramót.

„Hann var ekki í góðu ástandi, meiddur á hné og ökkla og ekki viss um að geta spilað. Hann kom til okkar í sjö skipti þessa viku sem hann var heima. Ég veit ekki betur en að læknirinn hafi síðan gefið honum grænt ljós á að spila. Hann var mjög ánægður með okkur og við hann enda færði hann okkur stærðarinnar Búddastyttu og blómvönd.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“

Aðdáendur agndofa eftir að leikkonan birti mynd af sér með ketti sínum – „Þetta er ekki í lagi“
Fókus
Í gær

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir

Khloé Kardashian greinir frá öllum fegrunaraðgerðum sem hún hefur gengist undir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul

Klámstjarna látin aðeins 28 ára gömul
Fókus
Fyrir 2 dögum

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“

Steingerður leitaði til spákvenna sem reyndist versta tímasóun – „Stundum yrði lífið léttbærara með þeirri vitneskju og stundum erfiðara“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“

Vikan á Instagram – Ber að ofan í „Sexico“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu

Málið sem skók Pólland: Morðinginn afhjúpaði sig óvart í skáldsögu