fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Sara Barðdal: „Sjáðu fyrir þér markmiðin þín og tengstu þeim tilfinningaböndum“

Sara Barðdal Þórisdóttir
Mánudaginn 31. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er að koma að stórum tímamótum, nýtt ár fer senn að hefjast!

Við hver áramót finnst mér gott að horfa yfir farinn veg, skoða árið sem var að líða, en fyrst og fremst undirbúa mig fyrir þetta nýja.

Ég reyni að dvelja ekki of lengi í fortíðinni, nema til þess að læra af henni.

Hér eru nokkrar spurningar sem þú getur haft í huga ef þú vilt fara í gegnum smá sjálfskoðun með þeim tilgangi að bæta þig og læra:

• Hvað gerði ég, skapaði, eða upplifði þetta árið?

• Hvaða hindranir rakst ég á og hvað get ég lært af þeim?

• Hverju er ég tilbúin að sleppa?

Oft eigum við það nefnilega til að þjóta áfram og ekki virkilega stoppa og gefa okkur tækifæri til þess að njóta þess sem við höfum áorkað, því þó svo að 2018 hafi kannski ekki farið 100% eftir áætlun þá áorkaðir þú ábyggilega helling, og náðir einhverjum markmiðum í leiðinni. Öllum skrefum fram á við ber að fagna, þannig taktu þér tíma til þess að skrifa þessa hluti niður, upplifa þakklæti og gleði yfir því góða sem gerðist.

Þegar þú hefur leyft huganum að reika og skrifað niður svörin þín hvet ég þig til þess að horfa fram á við til þess að hámarka líkurnar á að 2019 verði þitt besta ár hingað til.

Í dag langar mig að deila með þér þremur hollráðum sem munu hjálpa þér að láta það verða að veruleika.

1. Undirbúðu þig, því lífið er fullt af hindrunum

Það gerist því miður svo allt of oft að fólk byrji fullt af krafti og ákveðni í að ná áramótaheitunum sínum og nýju markmiðunum sínum (eða gömlu), því það ætla allir að eiga BESTA árið hingað til.

En hvað gerist svo…?

Lífið tekur við, það rekst á áskoranir, hindranir og áður en það veit er það búið að gefast upp við fyrsta mótvind.

Fólk gleymir einfaldlega að framfylgja nýju skrefunum sem fylgja markmiðunum sínum, skipuleggur sig jafnvel ekki nógu vel og er fljótt dottið aftur í gamalt far.

Ég veit að við könnumst öll við þetta.

En málið er að það verða ALLTAF hindranir, lífið mun alltaf henda einhverju til okkar til að takast á við og þess vegna þurfum við að undirbúa okkur, við þurfum að sætta okkur við það að hlutirnir munu aldrei ganga 100% eftir áætlun.

Því fyrr sem við gerum það, því fyrr muntu byrja að ná langtíma árangri. Því þetta snýst ekki um að vera fullkomin og gera allt 100%, þetta snýst um að vera að taka skref fram á við, þetta snýst um framfarir en EKKI fullkomnun. Þannig því fyrr sem þú kveður þennan „allt eða ekkert“ hugsunarhátt, því betra!

2. Brjóttu niður gamlar sögur og takmarkandi viðhorf

Manstu eftir þessum litla ljóta púka, sem situr á öxlinni hjá okkur öllum?

Við erum öll með þennan púka, hann getur verið með mismunandi skilaboð fyrir hvern og einn.

Ef þú ert alltaf að segja við þig:
„En ég er…..” og svo fylgir eitthvað neikvætt, niðurrífandi eða afsökun. Þá þarftu að fara til baka og skoða hvaðan það kemur. Hvar byrjaði þessi saga og er hún virkilega sönn? Eða er hún kannski eitthvað sem þú hefur bara sætt þig við og tekið sem þínum sannleika?

Því mundu að þetta býr einungis í huganum þínum, og það ert þú sem stjórnar honum, engin önnur.

Þú verður því að vinna í því að sleppa gömlum sögum og niðurrífandi sjálfstali.

Og mundu að þú hefur getuna til þess að breyta og uppfæra. Líkamlega ert þú ekki sama manneskjan og fyrir 3, 5 eða 10 árum.

Þannig þú átt líka að geta uppfært það hvernig þú talar við sjálfa þig eða hugsar, ekki satt?

3. Sjáðu fyrir þér markmiðin þín og tengstu þeim tilfinningaböndum

Hverju er nauðsynlegt að þú náir árið 2019? Hvað viltu láta verða að veruleika?

Þetta verður að vera eitthvað sem skiptir þig virkilega miklu máli og þú finnur það innra með þér að þú ert tilbúin að leggja vinnuna á þig til þess að ná markmiðinu þínu.

Ég ætla að vara þig við, farðu varlega í að setja markmið eins og „Ég ætla að borða fullkomið mataræði, æfa 5 sinnum í viku.. ”

Allt eru þetta markmið með góðum ásetningi, EN þú verður að gera ráð fyrir sveigjanleika í markmiðasetningunni þinni.

Þú verður að gera ráð fyrir því að þú vinnir kannski ekki allar vikurnar eða alla daganna. Því hlutir munu koma upp!

Ég er ekki að reyna draga úr hvatningunni þinni eða minnka metnaðinn þinn, það eru bara allt of margir sem setja sér metnaðarfull markmið, og svo kannski gerist eitthvað og þau ná 3 æfingum yfir vikuna, eða detta í 1 -2 slæma daga í mataræðinu og hugsa…

„Nú jæja, ég er búin að klúðra þessu markmiði, ég get alveg eins bara hent því út um gluggann… “
„Af hverju klikka ég alltaf og klúðra öllu?”

…og fólk hættir og gefst upp!

Það er EKKI málið kæra vinkona!! Það er ENGINN fullkominn ALLTAF og það er algjörlega fáranlegt að ætlast til þess að vera það!

Þannig ef þetta á við þig, ef þú ert þessi „allt eða ekkert“ týpa, eða ert með mikla fullkomnunaráráttu í því sem þú gerir þá VERÐUR þú, þú VERÐUR að sleppa því og byrja að horfa á þetta öðruvísi. Þetta verður að vera lífsstíll en ekki átak!! og lífsstíll þýðir jafnvægi, EKKI ÖFGAR!

Ekki henda í burtu markmiðinu þínu af því þá áttir heimskulegan dag kæra vinkona.

Ég vona að þetta hafi gefið þér hvatningu og hjálpað þér að hugsa hlutina öðruvísi þetta árið.

Taktu ákvörðun í dag um að hefja nýtt upphaf á næsta ári, nýjan lífsstíl sem þú elskar, lífsstíl í jafnvægi, án allra öfga, kalóríutalninga, eða púl 6-7 sinnum í viku í ræktinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“