Tilkynnt verður um tilnefningar til Fjöruverðlaunanna í dag kl. 17-18.30 í Menningarhúsinu Grófinni. Opinberað verður hvaða kvenrithöfundar verða tilnefndir í ár.
Verðlaunin verða svo veitt á árlegri bókmenntahátíð kvenna – Góugleðinni. Þau eru veitt fyrir barna- og unglingabækur, skáldverk fyrir fullorðna og fræðibækur. Þrjár bækur verða tilnefndar í hverjum flokki. Fjöruverðlaunin voru fyrst veitt árið 2007.