fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

„Einn daginn vöknuðum við upp við vondan draum. Allt í kring um okkur voru strákar, vinir okkar og kunningjar í blóma lífsins að deyja“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. ágúst 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Einn daginn vöknuðum við upp við vondan draum. Allt í kring um okkur voru strákar, vinir okkar og kunningjar í blóma lífsins að deyja,“ segir Viktor Sigurjónsson, leikstjóri og framleiðandi stuttmyndarinnar Lífið á eyjunni sem tekin verður upp á Seyðisfirði í vikunni og er ætlað að vekja athygli á geðheilsu ungra drengja.

Viktor og félagi hans Atli Óskar Fjalarsson hafa unnið markvisst að gerð myndarinnar í rúma átta mánuði. Myndin fjallar um Braga sem er 12 ára klár strákur en virðist ekki getað fótað sig í föstum umgjörðum samfélagsins. Hann á erfitt með nám og er í raun félagslega einangraður. Hann uppgötvar svo það afl sem tónlistin hefur að geyma þegar hann smíðar sér trommusett úr gömlum málningarfötum og byggingarefni.

„Við viljum leggja okkar að mörkum“
Í viðtali við Kristborgu Bóel Steinþórsdóttur á Austurfrétt segir Viktor að „sagan snertir á mörgum mikilvægum málefnum líkt og geðheilsu, vináttu drengja og félagslegri einangrun svo eitthvað sé nefnt. Ástandið er hið sama í öllum krikum samfélagsins, hvort sem það er í stórborgum eða litlum bæjum. Strákum líður illa og kunna ekki að biðja um hjálp.

Við höfum báðir lengi verið meðvitaðir um vandann, en umfang hans er svo gríðarlegt að við höfum upplifað okkur vanmáttuga gegn honum og liðið eins og eitthvað framlag frá okkur væri eins og að skvetta vatnsglasi á eldgos.

Við kynntumst á kvikmyndasetti í fyrra og þegar við fórum að ræða þessi mál kom fljótlega í ljós mikill samhugur og metnaður fyrir einhvers konar átaki. Ég hafði þá verið að vinna að handritinu um nokkurt skeið og Atli hafði komið af stað hóp þar sem strákar gátu talað opinskátt um tilfinningar sínar. Við ákváðum því að leiða saman hesta okkur og nú rúmu hálfu ári síðar er þessi mynd að verða að veruleika. Planið er að sýna myndina í skólum og fylgja henni eftir með umræðu og málþingum, en við viljum leggja okkar af mörkum til að hjálpa vinum, bræðrum, frændum og feðrum í neyð.“

„Við bara elskum Seyðisfjörð“
Tökutímabilið er átta dagar og verður öll myndin tekin upp á Seyðisfirði. Af hverju varð Seyðisfjörður fyrir valinu? „Fyrst og fremst er bærinn alveg ótrúlega fallegur. Við skoðuðum allskonar staði en mig langaði alltaf að gera myndina í einhverjum firði og þessi háu og bröttu fjöll ramma söguna og málefnið vel inn. Það er líka ákveðið tímaleysi fólgið í því að vera með fjöllin og sjóinn sem sögusviðið, maður finnur vel fyrir smæð sinni í því samhengi, með þessi óhreyfanlegu öfl í kringum sig. Ekki skemmir svo fyrir að Seyðisfjörður er mjög listatengdur bær, andrúmsloftið á staðnum er einstakt og íbúar hafa tekið okkur opnum örmum og eru til í að aðstoða okkur, en það seldi okkur hugmyndina endanlega. Við bara elskum Seyðisfjörð, það er bara ekki hægt annað.“

Verkefnið unnið í samstarfi við fjölmarga aðila
Viktor og Atli vinna verkefnið í samstarfi við minningarsjóð Einars Darra (Óskarssonar) en hann var aðeins 18 ára þegar hann lést á heimili sínu í vor eftir neyslu róandi lyfja. Fjölskylda hans sendi frá sér forvarnarmyndbandið Ég á bara eitt líf sem hefur vakið mikla athygli.

„Við erum einnig í samstarfi við ADHD-samtökin, Allir gráta og danskan kvikmyndasjóð. Kukl tækjaleiga hefur einnig stutt okkur sem og Seyðisfjarðarbær. Við vorum svo á fundi í Velferðarráðuneytinu í vikunni þar sem vel var tekið í erindi okkar og það verður vonandi næsti samstarfsaðili. Auk þess vonumst við til þess að fá Mennta- og menningarmálaráðuneytið til liðs við okkur.“

Greinin birtist fyrst á Austurfrétt og er birt með góðfúslegu leyfi.

Viktor og Atli standa fyrir fjármögnun myndarinnar á Karolina Fund og má styrkja gerð hennar hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Í gær

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar